Lítið um klapp á bakið hjá Rúv

Lítið um klapp á bakið hjá Rúv
Pétur henti skrifuðu ræðunni þegar hann fékk fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar. Í viðtali við blaðið lýsir hann hve kærkomið var að fá klapp á bakið, því lítið sé um slíkt innan Rúv.

Pétur henti skrifuðu ræðunni og talaði m.a. um ást sína á útvarpi

Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar í ár fær Pétur Halldórsson, útvarpsmaður Rásar 1 á Akureyri, fyrir útvarpsþátt sinn Tilraunaglasið. Þetta var kunngert í síðustu viku. „Þetta voru auðvitað mjög gleðileg tíðindi þegar Hope Knútsson, formaður Siðmenntar, hringdi í mig. Og ekki fannst mér þetta síður gleðilegt þegar ég sá að gömul átrúnaðargoð eins og Ari Trausti Guðmundsson og Örnólfur Thorlacius hefðu fengið þessi verðlaun ásamt vinum mínum í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness,“ segir Pétur í samtali við Akureyri vikublað.

Engir uppbyggingartímar innan Rúv
Um þýðingu verðlaunanna segir Pétur að þau séu fyrst og fremst styrkjandi fyrir sálina. „Það hafa ekki beint verið uppbyggingartímar hjá Ríkisútvarpinu undanfarin ár og ýmislegt dregið kjarkinn og sjálfstraustið úr fólki þar, uppsagnir og niðurskurður. Starfsfólk Rásar 1 vantar tilfinnanlega klapp á bakið sem lítið er um innan stofnunarinnar, því miður.“

Valið á þeim sem hljóta þessar tvær viðurkenningar hjá Siðmennt, húmanistaviðurkenninguna og fræðslu- og vísindaviðurkenninguna, fer þannig fram að félagar í Siðmennt eru beðnir að tilnefna fólk í þessum tveimur flokkum. Því er ekki um ákvörðun aðeins þröngs hóps að ræða. Pétur segist túlka þetta sem svo að með útvarpsþættinum Tilraunaglasið hafi hann gert eitthvað rétt. „Viðurkenningin er hvatning til að halda áfram á sömu braut.“

Siðmennt ranglega afgreidd sem trúfélag
Því miður fá viðurkenningar Siðmenntar ekki mikla athygli hjá fjölmiðlum að sögn Péturs. Siðmennt er afgreidd sem trúfélag, sem hún er í raun ekki. Hún er kölluð lífsskoðunarfélag og í raun er ekkert sem segir að trúað fólk geti ekki starfað með Siðmennt að þeim húmanísku markmiðum sem félagið hefur sett sér. Mér fannst merkilegt að við afhendinguna voru engir fulltrúar frá fjölmiðlum. Reyndar komu heldur ekki yfirmenn mínir af Ríkisútvarpinu sem boðið var og útvarpsstjóri hefur ekki óskað mér til hamingju. Ekki veit ég hvernig ég á að skilja það, hvort það hefur eitthvað að gera með þessa stöðu Siðmenntar við hlið trúfélaga,“ segir Pétur.

Henti tilbúinni ræðu
Spurður hvaða orð útvarpsmaðurinn hafi notað í ræðu sem hann flutti við móttöku viðurkenningarinnar segist hann hafa haft skrifaða ræðu í vasanum en svo fannst honum ræðan ekki eiga við þegar á hólminn var komið. „Ég tók hana upp úr vasanum og veifaði henni en sagði fólki að það fengi ekki að vita hvað á blöðunum stæði. Það væri hins vegar við hæfi dagskrárgerðarmanns á Rás 1 að hafa orð á blaði, því oft væri sagt um Rás 1 að þar væri aldrei sagt orð sem ekki hefði verið skrifað niður fyrst. Ég lýsti ánægju minni með að vera við hlið Jóns Gnarrs, ekki síst af því að hann væri í bættum jakka eins og ég. Við vorum báðir í stökum jakka með skinnbótum á olnbogunum. Ég hefði aldrei séð hann í dökkum jakkafötum með bindi og það væri ég ánægður með. Sá búningur væri búningur valdsins, verkfæri karlmanna til að sýna vald sitt og hefja sig yfir aðra. Þann búning fyndist mér að ætti að banna sem vinnufatnað.“

Áratuga ást á Rás 1
„Svo talaði ég um útvarp, ást mína á Útvarpinu frá barnsaldri, hvernig ég hefði gengið með útvarpstæki um hálsinn í grænu nælonbandi þegar ég vann sem unglingur í Lystigarðinum og hlustað á Rás 1. Ég hefði alltaf verið hrifinn af útvarpi og það hefði ýmsa kosti fram yfir sjónvarp. Í útvarpi sést ekki hvernig maður lítur út, hvort maður er einhvern veginn á litinn, fallegur eða ljótur, vel eða illa klæddur. Í útvarpi getur fólk talað án þess að útlitið trufli. Útvarp er líka hægt að hlusta á í baði, á klósettinu, í bílnum, á hjólinu eða hvar sem er. Ég sagði líka hvernig Tilraunaglasið hefði orðið til þegar þátturinn Vítt og breitt rann sitt skeið. Þar hefði ég verið með vísindapistla og borið þá hugmynd upp við Sigrúnu Stefánsdóttur dagskrárstjóra að ég byggi til vísindaþátt. Eitthvað talaði ég um gildi vísindanna líka,“ segir Pétur.

Í góðum hópi
Þeir sem hafa fengið Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar á undanförnum árum eru: Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur, Orri Harðarson, Ari Trausti Guðmundsson, Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn og í fyrra Örnólfur Thorlacius.

Í stefnuskrá segir að Siðmennt sé félag siðrænna húmanista á Íslandi. Félagið byggi starfsemi sína og lífssýn á siðrænum húmanisma (manngildishugsjóninni), sem er lífsviðhorf óháð trúarsetningum. Félagið stendur vörð um rétt einstaklinga til að þroskast á ólíkum forsendum og hvetur þá til ábyrgðar bæði á eigin velferð og annarra.

Siðmennt telur að uppgötvanir í vísindum og nýjungar í tækni geti stuðlað að betra lífi. Siðmennt hvetur til gagnrýninnar hugsunar og telur að nýjar hugmyndir eigi að standast fræðilega rannsókn; að öðrum kosti eigi að vantreysta þeim. Viðurkenning Péturs Halldórssonar er til marks um að störf hans falli undir þessi eftirsóknarverðu viðmið.

-BÞ

Fjölskyldan ætti hjálpast að við heimilisstörfin

Tíminn og barnið

Það er ákveðin þversögn í stöðu barna í dag. Annars vegar eru flest nútímabörn óskabörn foreldra sinna en á hinn bóginn er ekkert pláss fyrir þau í samfélagi þar sem allt snýst um peningar og neyslu. ... Lesa »

Benedikt Sigurðarson

Almenningur á heilbrigðisþjónustuna

Frá því 1991 hefur staðið nær samfellt harðinda og niðurskurðartímabil í heilbrigðisþjónustunni – með örfáum og staðbundnum undantekningum. Lengi vel stóðu sveitarstjórnarmenn og einstakir ... Lesa »

Úr vinnslusal ÚA á Akureyri. Mynd: Hilmar Friðjónsson

ÚA hagnaðist um 1.4 milljarða

Útgerðarfélag Akureyrar sem nú er dótturfélag Samherja hagnaðist um tæplega 1,4 milljarða króna á árinu 2012. Gert er upp í evrum og nam hagnaðurinn 8,9 milljónir evra. Ákveðið var að greiða helming ... Lesa »

Háværir háskólanemar í snjóstríði. Mynd: Erna Kristín Kristjánsdóttir

Þögnin rofin: snjóstríð í miðbænum

Um þessar mundir dvelur hópur bandarískra háskólanema á Akureyri. Hópurinn kemur frá Washington University í Seattle en ferðin er hluti af mannfræðiáfanga sem nemarnir taka og hafa þau dvalið á ... Lesa »

Jökull Guðmundsson

Innlegg í umræðuna…

Þótt tillaga um persónukjör sem rædd hefur verið síðustu misseri sé skref til aukins lýðræðis, fylgja henni álitaefni. T.d. að stjórnmálasamtök sem tilbúin eru með framboðslista þyrftu að geta valið ... Lesa »

Ingunn V. Sigmarsdóttir, þakkar Þorvaldi heitnum Þorsteinssyni fyrir að hafa kennt sér að skrifa með hjartanu.

Aldrað fólk er mér mjög kært

Ingunn V. Sigmarsdóttir kennari við Giljaskóla á Akureyri hefur skrifað nýja bók, skáldsöguna Bræðraborg. Bókin kemur úr prentun á næstunni en Akureyri vikublaði lék forvitni á að vita hvað varð til ... Lesa »

Matti Matt og Heiða Ólafs beittu röddum sínum vel á tónleikunum

Óma Íslandslög – ´60-´80

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Fjarðarbyggðar og popphljómsveit undir stjórn Daníels Þorsteinssonar komu fram á tónleikum, sem haldnir voru í Hamraborg í Hofi á Akureyri 2. nóvember. Stjórnandi ... Lesa »

DST_5497

Alveg ótrúlegur Pálmi

„Alveg ótrúlegur hann Pálmi,“ sagði einn af fjölmörgum tónleikagestum í Hofi þegar hann gekk út af þriggja tíma tónleikum Pálma Gunnarssonar og félaga í gærkvöldi en þá höfðu Pálmi og félagar spilað í ... Lesa »

Þegar bankarnir féllu stóð Halldóra á götunni í London. Hún segir að mývetnska þrjóskan hafi varnaði henni að leggja árar í bát.

Skapar skó af tilfinningu

Hugmyndir geta fæðst allsstaðar og fyrirvaralaust. Þess vegna gengur hún alltaf um með skyssubók og ef hún týnist fyllast vasar og töskur af litlum miðum. Halldóra Eydís Jónsdóttir skóhönnuður sækir ... Lesa »

Ljúffengir leggir

Ljúffengir leggir

Kjúklingaleggir eru ódýr og góður matur og hægt að útbúa úr þeim algert lostæti á stuttum tíma. Hér kemur uppskrift af kjúklingaleggjum sem eru bakaðir í ofni með asískri sterkri sósu. Ljúffengir ... Lesa »

Þóroddur Bjarnason

Menn tjargaðir og fiðraðir ef skýrsla er nefnd á nafn

Akureyringar verða að hætta að líta á eigin byggð sem eitt þorpanna úti á landi og gangast við hlutverki sínu í byggðaþróun á Norðurlandi. Þetta segir Þóroddur Bjarnason, kennari við Háskólann á ... Lesa »

1396569_10151812212117800_895978688_n (1)

Barnabíó í Rósenborg um helgina

9. og 10. nóvember, verða sýningar á pólskum teiknimyndaþáttum í sýningarsal Ungmenna-Hússins á 4. hæð Rósenborgar. Myndirnar eru allar án tals og því er pólskukunnátta ekki nauðsynleg til þess að ... Lesa »

Líklegt er að áhrif af útspili Jóns Gnarrs í síðustu viku nái til Akureyrar að mati þingmanns Bjartrar framtíðar.

Galopnar stöðuna á Akureyri

Ákvörðun Jóns Gnarr að leggja niður Besta flokkinn og hætta í pólitík galopnar ýmsa möguleika í öðrum sveitarfélögum að mati Prebens Péturssonar, varaþingmanns Bjartrar framtíðar í NA-kjördæmi. ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fær Háskólinn á Akureyri fyrir að hafa ráðið Sigrúnu Stefánsdóttur til starfa sem deildarforseta Hug- og félagsvísindaviðs. Svo segir karl sem segist „gamall í hettunni og hafi lengi fylgst með ... Lesa »

Einar Mikael töframaður segist hafa mest gaman af að láta hluti svífa í lausu lofti.

Einar Mikael töframaður fellur niður

Sýning Einars Mikaels töframanns sem vera átti í Sjallanum í kvöld fellur niður. „Vegna anna kemst ég ekki norður í dag. Allir sem keyptu miða fá endurgreitt og fá gefins Hókus Pókus DVD disk í ... Lesa »

Einar Mikael töframaður segist hafa mest gaman af að láta hluti svífa í lausu lofti.

Lyfti sér upp með göldrum þegar Ísland fór á hvolf

„Já, ég er á leiðinni norður með frábæra fjölskyldusýningu sem verður föstudaginn 8. nóvember í Sjallanum,“ segir Einar Mikael töframaður. Sýningin í Sjallanum er hluti af sýningarröð sem heitir ... Lesa »

Barn með endurskinsmerki. Mynd fengin af vef Umferðarstofu og tengist fréttinni ekki beint

Ekið á barn á gangbraut

Ekið var á dreng á gangbrautinni yfir Mýrarveg þar sem nýverið var sett ný hraðahindrun. Móðir drengsins, Rannveig Elíasardóttir skólahjúkrunarfræðingur, segir að sem betur fer hafi drengurinn sloppið ... Lesa »

Pétur henti skrifuðu ræðunni þegar hann fékk fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar. Í viðtali við blaðið lýsir hann hve kærkomið var að fá klapp á bakið, því lítið sé um slíkt innan Rúv.

Lítið um klapp á bakið hjá Rúv

Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar í ár fær Pétur Halldórsson, útvarpsmaður Rásar 1 á Akureyri, fyrir útvarpsþátt sinn Tilraunaglasið. Þetta var kunngert í síðustu viku. „Þetta voru auðvitað ... Lesa »

20131101_075515_LLS

Afleit tímasetning

Foreldri sendi blaðinu þessa símamynd sem tekin var kl. 07.55 að morgni föstudags í síðustu viku. Bíll gámaþjónustunnar athafnar sig á gönguleið skólabarna í myrkri og hálku, fimm mínútum áður en ... Lesa »

sjálfstæðisflokkur logo

Prófkjör hjá Sjálfstæðisflokki

Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í kvöld var samþykkt tillaga stjórnar fulltrúaráðs um að prófkjör verði haldið við val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í ... Lesa »

Silja Björk

Frosin ferðamannaparadís

Heimamaður gengur niður aðalgötu borgarinnar og er ekki þverfótað fyrir ferðamönnum, glampanum af myndavélaflössum og ágengum sölumönnum með „special price for you my friend!“ Heimamanninum verður ... Lesa »

Turtildúfurnar Eyþór Ingi og Elvý

Turtildúfur tónlistarinnar

Eyþór Ingi Jónsson, organisti í Akureyrarkirkju og kórstjóri með meiru, sér ekki fram á rólega tíma. Í kvöld leikur hann á tónleikum í Hofi með Elvý Guðnýju Hreinsdóttur, sambýliskonu sinni, og verða ... Lesa »

Ráðhúsið á Dalvík

Jákvæð rekstrarafkoma Dalvíkurbyggðar

Fyrri umræða fór fram í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar um frumvarp til fjárhagsáætlunar 2014 og fjögurra ára áætlunar 2014 – 2017 29. okt. sl. Helstu niðurstöðutölur fyrir árið 2014 eru þær að ... Lesa »

Ólína Þorvarðardóttir

Ólína segir rektor HA segja ósatt

Ólína Þorvarðardóttir hefur sent Akureyri vikublaði athugasemd þar sem hún segir rektor Háskólans á Akureyri fara með rangt mál. Í frétt sem blaðið birti sagði Stefán B. Sigurðsson rektor HA að „bæði ... Lesa »

Er spilling á Akureyri?

Ég hló mig til óbóta þegar ég las grein eða frétt sem nýlega birtist í Akureyri vikublaði en þar blés Sigurður Guðmundssson bæjarfulltrúi mikinn og sagðist ætla að vinna á móti “spillingu” og ... Lesa »

Skoða meira