Ég hló mig til óbóta þegar ég las grein eða frétt sem nýlega birtist í Akureyri vikublaði en þar blés Sigurður Guðmundssson bæjarfulltrúi mikinn og sagðist ætla að vinna á móti “spillingu” og tilgreindi sérstaklega að gera þyrfti skörp skil milli landsmálapólitíkur og sveitarstjórnarmála.
Í mínum huga er ein mesta spillingin innan bæjarkerfisins sjálfs og þar er þessi bæjarfulltrúi engin undantekning. Hann nýtir stöðu sína gagnvart embættismönnum bæjarins til að framfylgja eigin hagsmunum og er skýrasta dæmið þegar hann kallaði út forstöðumann skipulagsmála á laugardegi til að hóta fyrirtækinu FAB Travel ehf vegna skilta sem hann taldi að væru ólögleg. Umræddur skipulagsstjóri var í veikindafríi en hann kallaði undirmann sinn á staðinn og hótaði sá fyrirtækinu samdægurs sekt upp á kr. 1.000.000, bréflega á laugardegi.
Þetta eru ekki einu samskiptin sem ég, undirritaður ,hef átt við umræddan bæjarfulltrúa. Ég myndi ekki treysta honum fyrir fimmeyringi ef ég ætti hann til.
En lítum betur á spillinguna og spyrjum okkur spurninga, eiga atvinnurekendur að vera í sveitarstjórnarpólitík? Mín skoðun er að það eigi alls ekki við, eða í það minnsta orki það verulega tvímælis. Þegar farið er yfir bæjarfulltrúa á Akureyri kemur þar fyrst upp í hugann að Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi er að viðhalda einokunarstöðu við Akureyrarhöfn við komu skemmtiferðaskipa í samvinnu við Hafnarsamlag Norðurlands og Akureyrarbæ. Hvað yrði sagt ef flugstöðin yrði leigð til einkaaðila án skilyrða og aðeins ein bílaleiga fengi þar inni og meginhluti flugstöðvarinnar yrði fylltur af skrandrasli framleiddu í Kína og selt með mörg hundruð prósenta álagingu eins og gert er við Akureyrarhöfn þegar skemmtiferðaskip koma?
Í öðru lagi er Oddur Halldórsson, eigandi Blikkrásar, með puttann á öllum framkvæmdum á vegum Akureyrarbæjar. Af því tilefni vil ég að bæjarstjóri gefi upp opinberlega og svari eftirfarandi spurningum:
Hvað greiddi Akureyrarbær til Blikkrásar, fyrirtækis Odds Halldórssonar, á ári sl. 5 ár?
Var Oddur ekki í bygginganefnd menningarhúsins Hofs?
Fékk Blikkrás ekki öll verk við loftræstikerfi húsins og hvað fékk Blikkrás fyrir það í greiðslum bæði skv. tilboði og svo aukalega?
Á næstunni mun ég skrifa fleiri greinar er viðkoma samskiptum mínum við opinbera aðila á Akureyri og nágrenni og draga upp ljóta mynd af klíku og ruddaskap. Er af nógu að taka.
Tryggvi Sveinbjörnsson




























