Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í kvöld var samþykkt tillaga stjórnar fulltrúaráðs um að prófkjör verði haldið við val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum næsta vor. Samþykkt var að prófkjörið verði haldið laugardaginn 8. febrúar 2014 og kosið verði í sex sæti.
Á fundinum var kosið í kjörnefnd, skv. 8. grein laga fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri. Í nefndinni sitja níu fulltrúar, þau Andri Teitsson, Stefán Friðrik Stefánsson, Elín Margrét Hallgrímsdóttir, Gauti Hallsson, Rannveig Kr. Brynjólfsdóttir, Ingvar Leví Gunnarsson, Helga Ingólfsdóttir, Narfi Björgvinsson og Gunnur Ringsted.
Varamenn eru Sigurður Hermannsson, Ragnar Ásmundsson, Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir, Guðjón Steindórsson, Hjörtur Narfason, Anna Jenný Jóhannsdóttir, Gerður Ringsted, Kristinn F. Árnason og Ragnheiður Sveinsdóttir.


























