Um þessar mundir dvelur hópur bandarískra háskólanema á Akureyri. Hópurinn kemur frá Washington University í Seattle en ferðin er hluti af mannfræðiáfanga sem nemarnir taka og hafa þau dvalið á Íslandi í rúman mánuð. Flest koma ungmennin úr stórborgum og eftir að hafa ferðast um landið okkar og dvalið á stöðum eins og Vík og Grundafirði finnst þeim eitt af einkennum landsins vera þögnin. Hún var þó rofin eitt fallegt miðvikudagskvöld með snjóstríði í miðbæ Akureyrar.
Hópurinn frá Seattle hefur ferðast þó nokkuð um landið okkar og dvalið í um viku á hverjum stað. Þau byrjuðu í Reykjavík, fóru svo til Víkur, þaðan í Grundafjörð og Borganes og nú síðast hingað til Akureyrar. Hér munu háskólanemarnir dvelja í mánuð. Síðan verður haldið aftur til Reykjavíkur þar sem nemendur klára verkefnin sem þeir eru að vinna og ljúka ferð sinni um Ísland.
Nemi í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri og blaðamaður á Landpóstinum




























