Turtildúfur tónlistarinnar

Turtildúfur tónlistarinnar

Turtildúfurnar Eyþór Ingi og Elvý

Eyþór Ingi Jónsson, organisti í Akureyrarkirkju og kórstjóri með meiru, sér ekki fram á rólega tíma. Í kvöld leikur hann á tónleikum í Hofi með Elvý Guðnýju Hreinsdóttur, sambýliskonu sinni, og verða það fjórðu tónleikarnir af alls 28 fram að jólum. Giggin eru af ýmsu tagi með ólíkum hópum og undir ýmsum formerkjum. Meðal annars er hafin tónleikaröð þar sem organistinn Eyþór leikur sér með allt stafrófið.

Akureyri vikublað ákvað að kynna sér betur hvað keyrði slíka athafnasemi áfram.
„Ég veit það ekki,“ svaraði hann. „Hins vegar hef ég verið spurður hvort ég verði ekki moldríkur af þessu tónleikahaldi öllu. Það er nú af og frá, ég fæ ekki krónu fyrir neitt af þessu nema e.t.v. nokkra aura ef aðsókn að tónleikum okkar Elvýjar verður góð. Yfirleitt tapa ég á tónleikahaldi mínu, ætli það sé ekki aðallega hugsjónin og þörf fyrir listræna tjáningu sem ræður ferðinni.“

Ólíkir straumar blandast saman
Eitt af flaggskipum dagskrárinnar er tónleikaröð með Hymnodiu þar sem ýmsir kraftar slást í för. Eyþór stjórnar Hymnodiu og má nefna sem dæmi að Skálmöld, Pálmi Gunn og Ragnheiður Gröndal munu koma fram á tónleikum með kórnum á næstu vikum. Eyþór hefur áður lýst því í opnuviðtali við Akureyri vikublað að hann geri ekki upp á milli tónlistarstefna. Um samstarf Hymnodiu og rokkhljómsveitarinnar Skálmaldar segir hann að stundum þegar ólíkir skólar mætist, t.d. þegar sinfóníuhljómsveit komi fram með popphljómsveit séu einkum strengjasveitirnar meira til uppfyllingar. „En þetta verður miklu meira en það. Þarna mætast tvær tónlistarstefnur og verður ekkert slegið af.“

Kór sem fer ótroðnar slóðir
Tónleikaröðin sem Eyþór Ingi stendur að á næstunni verður flutt um víðan völl, allt frá litlum stöðum úti á landi og að Hörpunni í Reykjavík. Eyþór segir að fjöllistaefnisskrá Hymnodiu verði alls flutt níu sinnum. Kórinn sé ávallt til í ný og ný tækifæri og það kunni að skýra hversu eftirsótt hefur þótt að starfa með honum.

Hymnodia var stofnuð árið 2003, þá voru söngvararnir 8, núna eru þeir 18. Fyrstu árin kom kórinn fram á 3-4 tónleikum á ári, í ár kemur hann fram á um 30 tónleikum, syngjandi á milli 70 og 80 mismunandi lög. Einn af hápunktum starfsins í ár er jólaplata, önnur plata kórsins, nefnist hún Þar ljós inn skein. Á henni flytur kórinn, ásamt Láru Sóleyju Jóhannsdóttur fiðluleikara, Hjörleifi Erni Jónssyni slagverksleikara og Eyþór Inga harmóníumleikara 25 jólalög og er diskurinn í anda jólatónleika kórsins undanfarin ár.

Hvorki kórfélagar né stjórnandi þiggja laun fyrir vinnu sína í Hymnodiu. Öll innkoma fer beint í næsta verkefni. Allur kórinn tekur sameiginlega stærri ákvarðanir að sögn Eyþórs og engin stjórn er í kórnum.

Langt afmælisverkefni
En hvað með þetta stafrófsdæmi?
„Já, ég verð fertugur í lok nóvember og langaði að búa til langt verkefni þar sem ég spilaði allt stafrófið á orgel, einn staf í einu þannig að þetta yrðu milli 30 og 40 tónleikar.“

Þetta þarfnast nánari skýringa?
„Sko, ég flyt þá á einum og sömu tónleikunum bara verk undir einum bókstaf. Tökum A sem dæmi. Þá get ég valið úr að flytja verk höfunda sem hafa allir A sem fyrsta staf í nöfnum þeirra, eða vel verk sem byrja á A í titli eða flyt verk sem eru öll í A tóntegund. Ég ætla að dunda mér við það á næstu árum að renna svona í gegnum allt stafrófið.“

Börnin hjálpa til
Ekki er nóg með að tónleikatörn Eyþórs nái himinhæðum á næstunni heldur er einnig háannatími fram undan í kirkjulegu starfi vegna jólanna. Auk guðsþjónusta um hátíðirnar sjálfar flytur Kirkjukór Akureyrarkirkju (sem Eyþór stjórnar einnig) sína árlegu jólatónleika. Nefna má fleira árvisst líkt og Ljósberatónleika Bjargar Þórhallsdóttur.
„Börnin eru rosa góð við okkur, þetta er pínu erfitt þeirra vegna, því við Elvý erum bæði á kafi í þessu, en þetta hefst allt með aðstoð góðra vina og ættingja. Börnin sýna þessu góðan skilning. Þau eru æðisleg.“

Óður til fuglanna
Lesendur Akureyrar vikublaðs eru fuglamyndum Eyþórs Inga vel kunnir en hann hélt um langt skeið úti myndaþætti um fugla í blaðinu. Á tónleikum turtildúfnanna Elvýar og Eyþórs fjalla öll lögin um fugla í einhverri mynd. Þá verða fugalmyndir Eyþórs til sýnis á tónleikum þeirra tveggja.

-BÞ

Fjölskyldan ætti hjálpast að við heimilisstörfin

Tíminn og barnið

Það er ákveðin þversögn í stöðu barna í dag. Annars vegar eru flest nútímabörn óskabörn foreldra sinna en á hinn bóginn er ekkert pláss fyrir þau í samfélagi þar sem allt snýst um peningar og neyslu. ... Lesa »

Benedikt Sigurðarson

Almenningur á heilbrigðisþjónustuna

Frá því 1991 hefur staðið nær samfellt harðinda og niðurskurðartímabil í heilbrigðisþjónustunni – með örfáum og staðbundnum undantekningum. Lengi vel stóðu sveitarstjórnarmenn og einstakir ... Lesa »

Úr vinnslusal ÚA á Akureyri. Mynd: Hilmar Friðjónsson

ÚA hagnaðist um 1.4 milljarða

Útgerðarfélag Akureyrar sem nú er dótturfélag Samherja hagnaðist um tæplega 1,4 milljarða króna á árinu 2012. Gert er upp í evrum og nam hagnaðurinn 8,9 milljónir evra. Ákveðið var að greiða helming ... Lesa »

Háværir háskólanemar í snjóstríði. Mynd: Erna Kristín Kristjánsdóttir

Þögnin rofin: snjóstríð í miðbænum

Um þessar mundir dvelur hópur bandarískra háskólanema á Akureyri. Hópurinn kemur frá Washington University í Seattle en ferðin er hluti af mannfræðiáfanga sem nemarnir taka og hafa þau dvalið á ... Lesa »

Jökull Guðmundsson

Innlegg í umræðuna…

Þótt tillaga um persónukjör sem rædd hefur verið síðustu misseri sé skref til aukins lýðræðis, fylgja henni álitaefni. T.d. að stjórnmálasamtök sem tilbúin eru með framboðslista þyrftu að geta valið ... Lesa »

Ingunn V. Sigmarsdóttir, þakkar Þorvaldi heitnum Þorsteinssyni fyrir að hafa kennt sér að skrifa með hjartanu.

Aldrað fólk er mér mjög kært

Ingunn V. Sigmarsdóttir kennari við Giljaskóla á Akureyri hefur skrifað nýja bók, skáldsöguna Bræðraborg. Bókin kemur úr prentun á næstunni en Akureyri vikublaði lék forvitni á að vita hvað varð til ... Lesa »

Matti Matt og Heiða Ólafs beittu röddum sínum vel á tónleikunum

Óma Íslandslög – ´60-´80

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Fjarðarbyggðar og popphljómsveit undir stjórn Daníels Þorsteinssonar komu fram á tónleikum, sem haldnir voru í Hamraborg í Hofi á Akureyri 2. nóvember. Stjórnandi ... Lesa »

DST_5497

Alveg ótrúlegur Pálmi

„Alveg ótrúlegur hann Pálmi,“ sagði einn af fjölmörgum tónleikagestum í Hofi þegar hann gekk út af þriggja tíma tónleikum Pálma Gunnarssonar og félaga í gærkvöldi en þá höfðu Pálmi og félagar spilað í ... Lesa »

Þegar bankarnir féllu stóð Halldóra á götunni í London. Hún segir að mývetnska þrjóskan hafi varnaði henni að leggja árar í bát.

Skapar skó af tilfinningu

Hugmyndir geta fæðst allsstaðar og fyrirvaralaust. Þess vegna gengur hún alltaf um með skyssubók og ef hún týnist fyllast vasar og töskur af litlum miðum. Halldóra Eydís Jónsdóttir skóhönnuður sækir ... Lesa »

Ljúffengir leggir

Ljúffengir leggir

Kjúklingaleggir eru ódýr og góður matur og hægt að útbúa úr þeim algert lostæti á stuttum tíma. Hér kemur uppskrift af kjúklingaleggjum sem eru bakaðir í ofni með asískri sterkri sósu. Ljúffengir ... Lesa »

Þóroddur Bjarnason

Menn tjargaðir og fiðraðir ef skýrsla er nefnd á nafn

Akureyringar verða að hætta að líta á eigin byggð sem eitt þorpanna úti á landi og gangast við hlutverki sínu í byggðaþróun á Norðurlandi. Þetta segir Þóroddur Bjarnason, kennari við Háskólann á ... Lesa »

1396569_10151812212117800_895978688_n (1)

Barnabíó í Rósenborg um helgina

9. og 10. nóvember, verða sýningar á pólskum teiknimyndaþáttum í sýningarsal Ungmenna-Hússins á 4. hæð Rósenborgar. Myndirnar eru allar án tals og því er pólskukunnátta ekki nauðsynleg til þess að ... Lesa »

Líklegt er að áhrif af útspili Jóns Gnarrs í síðustu viku nái til Akureyrar að mati þingmanns Bjartrar framtíðar.

Galopnar stöðuna á Akureyri

Ákvörðun Jóns Gnarr að leggja niður Besta flokkinn og hætta í pólitík galopnar ýmsa möguleika í öðrum sveitarfélögum að mati Prebens Péturssonar, varaþingmanns Bjartrar framtíðar í NA-kjördæmi. ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fær Háskólinn á Akureyri fyrir að hafa ráðið Sigrúnu Stefánsdóttur til starfa sem deildarforseta Hug- og félagsvísindaviðs. Svo segir karl sem segist „gamall í hettunni og hafi lengi fylgst með ... Lesa »

Einar Mikael töframaður segist hafa mest gaman af að láta hluti svífa í lausu lofti.

Einar Mikael töframaður fellur niður

Sýning Einars Mikaels töframanns sem vera átti í Sjallanum í kvöld fellur niður. „Vegna anna kemst ég ekki norður í dag. Allir sem keyptu miða fá endurgreitt og fá gefins Hókus Pókus DVD disk í ... Lesa »

Einar Mikael töframaður segist hafa mest gaman af að láta hluti svífa í lausu lofti.

Lyfti sér upp með göldrum þegar Ísland fór á hvolf

„Já, ég er á leiðinni norður með frábæra fjölskyldusýningu sem verður föstudaginn 8. nóvember í Sjallanum,“ segir Einar Mikael töframaður. Sýningin í Sjallanum er hluti af sýningarröð sem heitir ... Lesa »

Barn með endurskinsmerki. Mynd fengin af vef Umferðarstofu og tengist fréttinni ekki beint

Ekið á barn á gangbraut

Ekið var á dreng á gangbrautinni yfir Mýrarveg þar sem nýverið var sett ný hraðahindrun. Móðir drengsins, Rannveig Elíasardóttir skólahjúkrunarfræðingur, segir að sem betur fer hafi drengurinn sloppið ... Lesa »

Pétur henti skrifuðu ræðunni þegar hann fékk fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar. Í viðtali við blaðið lýsir hann hve kærkomið var að fá klapp á bakið, því lítið sé um slíkt innan Rúv.

Lítið um klapp á bakið hjá Rúv

Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar í ár fær Pétur Halldórsson, útvarpsmaður Rásar 1 á Akureyri, fyrir útvarpsþátt sinn Tilraunaglasið. Þetta var kunngert í síðustu viku. „Þetta voru auðvitað ... Lesa »

20131101_075515_LLS

Afleit tímasetning

Foreldri sendi blaðinu þessa símamynd sem tekin var kl. 07.55 að morgni föstudags í síðustu viku. Bíll gámaþjónustunnar athafnar sig á gönguleið skólabarna í myrkri og hálku, fimm mínútum áður en ... Lesa »

sjálfstæðisflokkur logo

Prófkjör hjá Sjálfstæðisflokki

Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í kvöld var samþykkt tillaga stjórnar fulltrúaráðs um að prófkjör verði haldið við val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í ... Lesa »

Silja Björk

Frosin ferðamannaparadís

Heimamaður gengur niður aðalgötu borgarinnar og er ekki þverfótað fyrir ferðamönnum, glampanum af myndavélaflössum og ágengum sölumönnum með „special price for you my friend!“ Heimamanninum verður ... Lesa »

Turtildúfurnar Eyþór Ingi og Elvý

Turtildúfur tónlistarinnar

Eyþór Ingi Jónsson, organisti í Akureyrarkirkju og kórstjóri með meiru, sér ekki fram á rólega tíma. Í kvöld leikur hann á tónleikum í Hofi með Elvý Guðnýju Hreinsdóttur, sambýliskonu sinni, og verða ... Lesa »

Ráðhúsið á Dalvík

Jákvæð rekstrarafkoma Dalvíkurbyggðar

Fyrri umræða fór fram í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar um frumvarp til fjárhagsáætlunar 2014 og fjögurra ára áætlunar 2014 – 2017 29. okt. sl. Helstu niðurstöðutölur fyrir árið 2014 eru þær að ... Lesa »

Ólína Þorvarðardóttir

Ólína segir rektor HA segja ósatt

Ólína Þorvarðardóttir hefur sent Akureyri vikublaði athugasemd þar sem hún segir rektor Háskólans á Akureyri fara með rangt mál. Í frétt sem blaðið birti sagði Stefán B. Sigurðsson rektor HA að „bæði ... Lesa »

Er spilling á Akureyri?

Ég hló mig til óbóta þegar ég las grein eða frétt sem nýlega birtist í Akureyri vikublaði en þar blés Sigurður Guðmundssson bæjarfulltrúi mikinn og sagðist ætla að vinna á móti “spillingu” og ... Lesa »

Skoða meira