Ekið var á dreng á gangbrautinni yfir Mýrarveg þar sem nýverið var sett ný hraðahindrun. Móðir drengsins, Rannveig Elíasardóttir skólahjúkrunarfræðingur, segir að sem betur fer hafi drengurinn sloppið án meiðsla. Ökumaður bílsins hafi hringt og tilkynnti henni slysið. Hann hafi sagt að hann hefði ekki séð drenginn.
Rannveig segir að bílar keyri oft hratt á Mýrarveginum og betra væri að hafa gangbrautavörð eða umferðarljós við þessa göngubraut. „Þessi ökumaður var sem betur fer á lítilli ferð. Sonur minn henti sér út af götunni en datt þó við áreksturinn. Ég vil hvetja fólk til að fá börnin til að nota endurskinsmerki og biðja ökumenn að vera vakandi og aka eftir aðstæðum,“ segir Rannveig.
-BÞ


























