Lof fær Háskólinn á Akureyri fyrir að hafa ráðið Sigrúnu Stefánsdóttur til starfa sem deildarforseta Hug- og félagsvísindaviðs. Svo segir karl sem segist „gamall í hettunni og hafi lengi fylgst með bæði fræðum og fjölmiðlum“. Karlinn segir í símtali við ritstjórn að ráðning Sigrúnar sé borðleggjandi. Hér eigi Sigrún rætur, hér hafi hún starfað og kennt. Rektor HA hafi verið vandi á höndum en hann hafi komist að réttri niðurstöðu…
Lof fá þeir sem hafa í massavís dælt upplýsingum, fréttum og fróðleik inn á fréttavefinn akureyrivikublad.is síðastliðin misseri. Svo segir kona sem sendi blaðinu póst. Rétt er hjá konunni að mikil vinna hefur átt sér stað til að halda fréttavefnum úti og hefur ritstjóri vefjarins unnið sleitulaust alla daga sem nætur, á virkum dögum sem helgum við að flytja nýjustu fréttir frá Norðurlandi. En peningar eru hreyfiafl allra hluta og kann svo að fara að ekki reynist grundvöllur til að halda vefnum úti áfram. Enn bíður heimsbyggðin þess að auglýsingaverð í netheimum taki kipp upp á við. Framtíð vefjarins veltur á norðlenskum auglýsingamarkaði, að fólk og fyrirtæki auglýsi. Annars er tilvist hins norðlenska frétta- og umræðuvefjar í nokkurri óvissu, en aðstandendur vefjarins þakka konunni góð orð…
Lof fær Akureyrarbær fyrir að ryðja megingönguleiðir og helstu umferðargötur hratt og vel eftir mikla snjókomu í síðustu viku. Svo skrifar karl á Brekkunn í bréfi til blaðsins. Á fjórða degi var nánast búið að ryðja allar húsagötur einnig. Þetta heldur hjólum atvinnulífsins og mannlífsins í bænum gangandi - tilkostnaður sem borgar sig. “Gæti best trúað því að bæjarbúar sjái með glöðu geði hluta útsvarsins fara í svona góða þjónustu. En svo má náttúrlega alltaf vonast eftir snjóléttum vetri,” skrifar íbúinn.
Lof fær Akureyringurinn Sunna Valgerðardóttir fyrir „töff innstimplun“ sem fréttakona á fréttastofu Rúv. Svo segir kona á Brekkunni í bréfi til blaðsins…


























