Foreldri sendi blaðinu þessa símamynd sem tekin var kl. 07.55 að morgni föstudags í síðustu viku. Bíll gámaþjónustunnar athafnar sig á gönguleið skólabarna í myrkri og hálku, fimm mínútum áður en bjallan hringir. „Stórir og litlir krakkar voru þarna um allt eins og flugur á svæðinu þar sem bíllinn bakkaði og snerist. Það hlýtur að vera hægt að gera þetta á öðrum tíma til að minnka slysahættu,“ segir foreldrið.
-BÞ



























