Kjúklingaleggir eru ódýr og góður matur og hægt að útbúa úr þeim algert lostæti á stuttum tíma. Hér kemur uppskrift af kjúklingaleggjum sem eru bakaðir í ofni með asískri sterkri sósu.
Ljúffengir leggir
- 12-15 kjúklingaleggir
- 50 gr hveiti
- 2 msk maísmjöl
- 2 tsk salt
Sósa
- 2 dl eplasafi
- 60 gr pálmasykur (eða púðursykur)
- 6 msk sojasósa
- 6 msk hrísgrjónaedik
- 2 cm engifer rót, rifin
- 2 hvítlauksrif, rifin
- 6 msk sriracha sósa (eða 6 msk tómatsósa + 1 -2 tsk chiliduft)
Undirbúningur: 15 mínútur
Eldunartími: 60 mínútur
Byrjaðu á að hita ofninn í 200°C.
Settu hveiti, maísmjöl og salt í skál, skolaðu og þerraðu kjúklingabitana og veltu þeim upp úr hveitiblöndunni. Leggðu á bökunarpappír á plötu.
Steiktu í ofninum í 40 mínútur, snúðu bitunum við eftir helming steikingartímans.
Á meðan að kjúklingurin steikist þá útbýrðu sósuna.
Settu eplasafa, pálmasykur, soja, edik, engifer, hvítlauk og sriracha sósu í pott. Láttu suðuna koma hressilega upp, lækkaðu svo undir og láttu malla á meðan að kjúklingurinn steikist.
Eftir 40 mínútna steikingartímann tekurðu kjúklinginn út og hellir sósunni yfir. Setur hann aftur inn í ofninn og lækkar hitann í 180°C og steikir í 15 mínútur eða þar til allt er orðið vel klístrað og dásamlegt.
Berðu fram með salati og hrísgrjónum og góðum bunka af handþurrkum. Svona mat borðar maður með fingrunum
Helga Kvam
Allskonar.is


























