
Líklegt er að áhrif af útspili Jóns Gnarrs í síðustu viku nái til Akureyrar að mati varaþingmanns Bjartrar framtíðar.
Ákvörðun Jóns Gnarr að leggja niður Besta flokkinn og hætta í pólitík galopnar ýmsa möguleika í öðrum sveitarfélögum að mati Prebens Péturssonar, varaþingmanns Bjartrar framtíðar í NA-kjördæmi. Tenging er milli Bjartrar framtíðar og Besta flokksins og útilokar Preben ekki að Björt framtíð bjóði fram á Akureyri hvort sem hann muni sjálfur gefa kost á sér í efstu sæti eða ekki. Ekkert sé ákveðið með það. Preben segir að einnig kunni að koma til greina að BF bjóði fram í slagtogi með öðrum flokkum, bæði á Akureyri sem og á fleiri stöðum. „Við þurfum að vinna hratt og sjá hvað kemur út úr þessu,“ segir Preben.
Persónuleg staða Prebens er sú að eiginkona hans, Halla Björk Reynisdóttir, er lykilmanneskja hjá L-listanum og gegnir ýmsum mikilvægum trúnaðarembættum á vegum L-listans. Preben hefur sjálfur unnið trúnaðarstörf fyrir L-listann t.d. með því að gegna formennsku í skólanefnd bæjarins. Ein spurningin er hvaða áhrif það muni hafa á L-listann, sem situr einn í meirihluta bæjarstjórnar á Akureyri, ef Björt framtíð býður fram.
-BÞ


























