Fyrri umræða fór fram í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar um frumvarp til fjárhagsáætlunar 2014 og fjögurra ára áætlunar 2014 – 2017 29. okt. sl. Helstu niðurstöðutölur fyrir árið 2014 eru þær að samstæðan (A og B hluti) skilar afgangi uppá ríflega 33 m. kr.
Veltufé frá rekstri er áætlað um 240 m kr. og veltufjárhlutfall er áætlað 1,14. Eiginfjárhlutfall er 0,56. Skuldahlutfall skv. fjármálareglum er netto um 80%. Heildartekjur eru áætlaðar 1.708.344 m kr. og rekstrarútgjöld án afskrifta 1.519.102 m.kr. Framlegðin er því um 11%.
Fjárfestingar á árinu nema um 225 m kr. Langstærsta framkvæmdin er fyrri áfangi hafskipakants í Dalvíkurhöfn. Bæði A og B hluti skila jákvæðri niðurstöðu öll árin.
Áætlun fyrir árin 2015 – 2017 gerir ráð fyrir hagnaði öll ár.
-BÞ


























