Útgerðarfélag Akureyrar sem nú er dótturfélag Samherja hagnaðist um tæplega 1,4 milljarða króna á árinu 2012. Gert er upp í evrum og nam hagnaðurinn 8,9 milljónir evra. Ákveðið var að greiða helming hagnaðar út í arð til eigenda. Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins.
Hagnaður Útgerðarfélagsins rúmlega tvöfaldaðis frá árinu 2011 en hann nam þá tæpum 4 milljónum evra en það var um mitt það ár sem Samherji keypti félagið. Útgerðarfélag Akureyrar gerir út tvö skip og rekur landvinnslu á Akureyri og Laugum í Reykjadal. Framkvæmdastjóri félagsins er Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og einn stærsti eigandi Samherja.




























