Almenningur á heilbrigðisþjónustuna

Almenningur á heilbrigðisþjónustuna

Benedikt Sigurðarson

Frá því 1991 hefur staðið nær samfellt harðinda og niðurskurðartímabil í heilbrigðisþjónustunni – með örfáum og staðbundnum undantekningum. Lengi vel stóðu sveitarstjórnarmenn og einstakir Alþingismenn af talsverðri einurð til varnar hagsmunum og gerðu jafnvel kröfur um uppbyggingu – bæði í gegn um þátttöku í stjórnum og með aðgangi að ríkisstjórn og lykilhlutverkum á Þinginu.

Svo lengi sem ég man hafa kvenfélög og fleiri almannasamtök verið afar drjúg og dugleg við að safna peningum til uppbyggingar og tækjakaupa á spítölum og heilsugæslustöðvum. Sumar þessar stofnanir hafa þannig verið fjármagnaðar að umtalsverðu leyti með gjafafé frá almenningi. Með því hefur þessi sami almenningur einmitt eignast ríkari hlutdeild – beinni eignarrétt– en almennt um opinberar stofnanir ríkis eða sveitarfélaga.

Á árinu 2009-2010 var gerð harkaleg tilraun til niðurskurðar á heilbrigðisstofnunum í dreifbýlinu. Þá risu upp máttarstólpar samfélaga og börðust opinskátt og af nokkru harðfylgi gegn niðurskurðinum – og höfðu í mörgum tilfellum erindi. Hægt var á niðurskurðinum og víða virtist áhrifum niðurskurðar dreift á lengri tíma - en samt var ekki snúið við.

Eyðilegging sjúkrahúsþjónustu um landsbyggðina hefur haft sinn framgang - nú er búið að loka fjölmörgum skurðstofum og afleggja fæðingarþjónustu viðast hvar utan Akureyrar og Reykjavíkur. Sú eðlisbreyting var gerð með lagabreytingu og samningum við sveitarstjórnarmenn 2006-2007 að heimamenn sögðu sig frá þátttöku og ábyrgð á stjórnun heilbrigðisstofnana. Með því var innleitt forstjóra-einræði og duttlungavald ráðuneytisins í Reykjavík þvert gegn öllum þekktum lögmálum um skilvirka og lýðræðislega stjórnsýslu og árangur í þjónustu.

Fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp leggur línur um áframhaldandi niðurskurð og skerðingu á þjónustu. Einbeitt viðbrögð lækna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi og greiður aðgangur þeirra að fjölmiðlum hefur ótvírætt orðið til þess að auka skilning á hættuástandi sem þar hefur skapast og almenna orðræðan bendir til að samstaða kunni að nást á Alþingi um að bæta 3-4 milljörðum við fjárframlögin til LSH.

Hins vegar fer nú lítið fyrir viðbrögðum víða um land til varnar sjúkrahúsum og heilbrigðisþjónustunni. Ef eitthvað er sem virkilega rýrir lífsgæði og minnkar öryggi fjölskyldnanna í dreifðum byggðum þá er það niðurbrot á heilbrigðisþjónustu og lakara aðgengi. Eignaverð lækkar og möguleikar atvinnufyrirtækjanna til að laða til sín og halda í öflugt starfsfólk versna.

Á sama tíma er sjúkrabílum lagt og lokað á flutninga frá nærbyggðum.

Meðan á þessu gengur er afkoma í sjávarútvegi betri en nokkru sinni. Ein einasta fjölskylda halar inn hreinum hagnaði upp á 16 milljarða á ári, en samt grenja tilteknir forkólfar LÍÚ bókstaflega af frekju. Maður getur undrast að fyrirtæki sem blómstra skuli ekki hækka laun starfsmanna sinna almennt og orðalaust. Yfir því mundum við flest gleðjast af heilum hug, en eitthvað hljómar það nú falskt þegar fyrirtæki kjósa frekar að kosta til utanlandsferðum heilla hópa starfsmanna til „að hafa menn góða“ fremur en að láta alla njóta í formi betri kjara.

Auðvitað eru til nógir peningar í samfélaginu sem enn er meðal 20 best sett í heiminum þrátt fyrir Hrunið. Hins vegar er óþolandi að ríkissjóður skuli vera að borga 90 milljarða á ári í ónauðsynlega vexti af lánum sem tekin voru að mestu til að greiða fyrir endurreisn alltof stórs bankakerfis og gjaldþrota Seðlabanka.

Bankakerfið er 30-50% of stórt skv. McKinsey skýrslunni sem kom út í fyrra – og hefur verið að rúlla upp hagnaði frá hruni sem senn nær 300 milljörðum. Almenningur og fyrirtækin um land allt eru hins vegar í skuldaklóm – og bera alltof háa kostnaðarbyrði af handstýrðum vöxtum Seðlabankans sem skákar í skjóli gjaldeyrishaftanna með „sýndarveruleika“sem virðist mklum mun fjær raunheiminum en tölvuleikurinn Eve-Online.

Peningar eru til – þeim er hins vegar bæði illa varið og ranglátlega skipt.

Hér með leyfi ég mér að skora á allan almenning að taka til varna fyrir heilbrigðisþjónustu og krefjast áframhaldandi og helst bætts aðgengis að sérfræðilæknisþjónustu.

Konur og karlar sýnið nú dug og dómgreind - og þótt „máttarstólparnir“ séu etv. uppteknir við að vera vinir valdamanna í ríkisstjórn – þá þarf einfaldlega ekki á þeim að halda ef þeir skilja hvorki þörf né neyð síns samfélags.

Benedikt Sigurðarson
Höfundur er framkvæmdastjóri

mafama

MAFAMA á Backpackers

Lifandi tónlist hefur að undanförnu verið leikin á miðvikudögum á Akureyri Backpackers. Á morgun er komið að þríeykinu í MAFAMA að leika rafpopp. Strákarnir í MAFAMA léku síðast í Hofi við góðan ... Lesa »

Ásgerður

Ásgerður sigraði ræðukeppni á ensku

Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir nemandi á fjórða ári í MA sigraði ræðukeppni sem fram fór á ensku. Keppnin er haldin er á vegum ESU (English Speaking Union) og FEKÍ (Félag enskukennarafélag á ... Lesa »

Þævingsfærð og óveður var á Grenivíkurvegi í dag og Víkurskarðið lokað um tíma. Mynd úr safni

Strætó valt á Húsavík - kalla þurfti út snjóruðningstæki til að opna Víkurskarðið

Strætisvagn á leið 79 til Húsavíkur valt á hliðina og út af veginum rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Mikil hálka og krapi var á veginum þegar slysið varð og töluverður vindur. Einn farþegi var um borð, ... Lesa »

Börn á Hólmasól. Mynd af vefsíðu skólans

Mikill áhugi á Hjallastefnugrunnskóla á Akureyri

Nefnd á vegum foreldrafélags Hólmasólar ætlar að ræða við bæjaryfirvöld og forsvarsmenn Hjallastefnunnar til að kanna hvort raunverulegur möguleiki sé ái því að Hjallastefnugrunnskóli geti tekið til ... Lesa »

Hljómsveitin Bloodgroup spilar í Hofi á fimmtudagskvöld ásamt Akureyrsku hljómsveitinni Nolam

Bloodgroup og Nolem í Hofi

Hljómsveitin Bloodgroup mun koma fram á þriðju útgáfu tónleikaraðarinnar Sérfræðingar að Sunnan, en hún fer fram í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Tónleikarnir fara fram fimmtudaginn 14. nóvember og ... Lesa »

Þingfulltrúar á 28. þingi LÍV

Verðlagshækkanir ögrun við íslenskt launafólk

„Stöðugleika verður ekki náð á Íslandi með því að launþegar stilli kröfum sínum í hóf. Fleira þarf að koma til. Stjórnvöld verða að leggja fram trúverðuga efnahagsstefnu sem tryggir stöðugt gengi og ... Lesa »

Ljótu hálfvitarnir verða á Græna hattinum um helgina

Síðustu hálfvitatónleikar vetrarins

Ljótu hálfvitarnir fengu ekki miða á landsleikinn, enda kvöldsvæfir menn og klaufar á tölvu. Til að deyfa vonbrigðin hyggjast þeir brjótast norður til Akureyrar föstudaginn 15. nóvember og leika og ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Að bulla með valdi

Ég hef velt því svolítið fyrir mér undanfarið, sérstaklega eftir spjall við góða vinkonu sem hefur alltaf verið ófeimin við að benda á það sem betur mætti fara í jafnréttismálum, hvort ég hafi sjálf ... Lesa »

Saga Travel fékk nýsköpunarverðlaun SAF

Saga Travel hlaut nýsköpunarverðlaun SAF 2013

SAF – Samtök ferðaþjónustunnar veittu í dag nýsköpunarverðlaun 2013 á Center Hótel í Reykjavík. Það var fyrirtækið SAGA TRAVEL sem hlaut verðlaunin en þetta er í tíunda sinn sem samtökin veita ... Lesa »

Á Kjalvegi 17. september sl.

Þrýst á um endurbætur á Kjalvegi

Forsvarsmenn þriggja sveitarfélaga og sjö ferðaþjónustuaðila hafa sent frá sér yfirlýsingu um að óviðunandi sé að ekki sé gert ráð fyrir fjárveitingu til endurbóta eða uppbyggingar á Kjalvegi í ... Lesa »

Einar Mikael töframaður býður börnum frítt á töfranámskeið 1. des

Einar Mikael býður frítt á sýningu og námskeið

Töframaðurinn Einar Mikael býður öllum krökkum á Akureyri á fría sýningu og námskeið sunnudaginn 1. desember en sýning sem hann ætlaði að halda í Sjallanum sl. föstudag féll niður. „Mér fannst ... Lesa »

Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs FSA

Launagreiðslur FSA yfir áætlun

Ef svo fer sem horfir með má gera ráð fyrir að halli á rekstri Sjúkrahússins í árslok verði á bilinu 130-150 milljónir. Þetta kemur fram í grein sem Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs ... Lesa »

Fjölskyldan ætti hjálpast að við heimilisstörfin

Tíminn og barnið

Það er ákveðin þversögn í stöðu barna í dag. Annars vegar eru flest nútímabörn óskabörn foreldra sinna en á hinn bóginn er ekkert pláss fyrir þau í samfélagi þar sem allt snýst um peningar og neyslu. ... Lesa »

Benedikt Sigurðarson

Almenningur á heilbrigðisþjónustuna

Frá því 1991 hefur staðið nær samfellt harðinda og niðurskurðartímabil í heilbrigðisþjónustunni – með örfáum og staðbundnum undantekningum. Lengi vel stóðu sveitarstjórnarmenn og einstakir ... Lesa »

Úr vinnslusal ÚA á Akureyri. Mynd: Hilmar Friðjónsson

ÚA hagnaðist um 1,4 milljarða

Útgerðarfélag Akureyrar sem nú er dótturfélag Samherja hagnaðist um tæplega 1,4 milljarða króna á árinu 2012. Gert er upp í evrum og nam hagnaðurinn 8,9 milljónir evra. Ákveðið var að greiða helming ... Lesa »

Háværir háskólanemar í snjóstríði. Mynd: Erna Kristín Kristjánsdóttir

Þögnin rofin: snjóstríð í miðbænum

Um þessar mundir dvelur hópur bandarískra háskólanema á Akureyri. Hópurinn kemur frá Washington University í Seattle en ferðin er hluti af mannfræðiáfanga sem nemarnir taka og hafa þau dvalið á ... Lesa »

Jökull Guðmundsson

Innlegg í umræðuna…

Þótt tillaga um persónukjör sem rædd hefur verið síðustu misseri sé skref til aukins lýðræðis, fylgja henni álitaefni. T.d. að stjórnmálasamtök sem tilbúin eru með framboðslista þyrftu að geta valið ... Lesa »

Ingunn V. Sigmarsdóttir, þakkar Þorvaldi heitnum Þorsteinssyni fyrir að hafa kennt sér að skrifa með hjartanu.

Aldrað fólk er mér mjög kært

Ingunn V. Sigmarsdóttir kennari við Giljaskóla á Akureyri hefur skrifað nýja bók, skáldsöguna Bræðraborg. Bókin kemur úr prentun á næstunni en Akureyri vikublaði lék forvitni á að vita hvað varð til ... Lesa »

Matti Matt og Heiða Ólafs beittu röddum sínum vel á tónleikunum

Óma Íslandslög – ´60-´80

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Fjarðarbyggðar og popphljómsveit undir stjórn Daníels Þorsteinssonar komu fram á tónleikum, sem haldnir voru í Hamraborg í Hofi á Akureyri 2. nóvember. Stjórnandi ... Lesa »

DST_5497

Alveg ótrúlegur Pálmi

„Alveg ótrúlegur hann Pálmi,“ sagði einn af fjölmörgum tónleikagestum í Hofi þegar hann gekk út af þriggja tíma tónleikum Pálma Gunnarssonar og félaga í gærkvöldi en þá höfðu Pálmi og félagar spilað í ... Lesa »

Þegar bankarnir féllu stóð Halldóra á götunni í London. Hún segir að mývetnska þrjóskan hafi varnaði henni að leggja árar í bát.

Skapar skó af tilfinningu

Hugmyndir geta fæðst allsstaðar og fyrirvaralaust. Þess vegna gengur hún alltaf um með skyssubók og ef hún týnist fyllast vasar og töskur af litlum miðum. Halldóra Eydís Jónsdóttir skóhönnuður sækir ... Lesa »

Ljúffengir leggir

Ljúffengir leggir

Kjúklingaleggir eru ódýr og góður matur og hægt að útbúa úr þeim algert lostæti á stuttum tíma. Hér kemur uppskrift af kjúklingaleggjum sem eru bakaðir í ofni með asískri sterkri sósu. Ljúffengir ... Lesa »

Þóroddur Bjarnason

Menn tjargaðir og fiðraðir ef skýrsla er nefnd á nafn

Akureyringar verða að hætta að líta á eigin byggð sem eitt þorpanna úti á landi og gangast við hlutverki sínu í byggðaþróun á Norðurlandi. Þetta segir Þóroddur Bjarnason, kennari við Háskólann á ... Lesa »

1396569_10151812212117800_895978688_n (1)

Barnabíó í Rósenborg um helgina

9. og 10. nóvember, verða sýningar á pólskum teiknimyndaþáttum í sýningarsal Ungmenna-Hússins á 4. hæð Rósenborgar. Myndirnar eru allar án tals og því er pólskukunnátta ekki nauðsynleg til þess að ... Lesa »

Líklegt er að áhrif af útspili Jóns Gnarrs í síðustu viku nái til Akureyrar að mati þingmanns Bjartrar framtíðar.

Galopnar stöðuna á Akureyri

Ákvörðun Jóns Gnarr að leggja niður Besta flokkinn og hætta í pólitík galopnar ýmsa möguleika í öðrum sveitarfélögum að mati Prebens Péturssonar, varaþingmanns Bjartrar framtíðar í NA-kjördæmi. ... Lesa »

Skoða meira