„Já, ég er á leiðinni norður með frábæra fjölskyldusýningu sem verður föstudaginn 8. nóvember í Sjallanum,“ segir Einar Mikael töframaður. Sýningin í Sjallanum er hluti af sýningarröð sem heitir Galdralest Einars Mikaels og rennur allur ágóði af miðasölu til Barnaspítala Hringsins.
Velgengni töframannsins hefur vakið athygli þótt galdrakarlinn sé ungur að árum. Á einu ári hafa yfir 8.000 manns komið á sýningar hjá honum. Sýningin í Sjallanum inniheldur að sögn Einars margar „risasjónhverfingar“ sem hann heldur fram að hafi hingað til bara verið hægt að sjá í Las Vegas. Kona verði söguð í sundur og áhorfendur megi búast við því að sjá magnaðar sjónhverfingar, lifandi töfradúfur ofl. Einn heppinn áhorfandi muni svífa í lausu lofti og fólk muni sjá hluti hverfa og birtast á ótrúlegan hátt.
En hvað varð til þess að Einar fór að galdra?
„Þegar ég var 13 ára sá ég töframann í Ameríku sýna töfrabrögð og varð alveg heillaður. Síðan þegar Ísland fór á hvolf þá vantaði mig eitthvað til að lyfta mér upp og ákvað að gerast töframaður.“
Hvað þarf góður galdrakarl að uppfylla?
„Hann þarf að hafa mikinn áhuga á töfrabrögðum og elska að vera í kringum fólk. Síðan snýst þetta um að koma sem oftast fram til að öðlast reynslu og þá verður maður betri og betri.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
„Mér finnst skemmtilegast að láta hluti svífa. Það er erfitt að toppa svoleiðis og viðbrögðin verða alltaf góð.“
-BÞ


























