Vel tókst til með Atvinnu- og nýsköpunarhelgina sem fram fór fyrir nokkrum dögum á Akureyri. Snæfríður Ingadóttir, fyrrum fréttamaður á rúv, hefur góða reynslu af framtakinu en í fyrra hafnaði hún í þriðja sæti í verðlaunakeppni Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar fyrir viðskiptahugmyndina, Tannstrá, tannstönglar úr stráum. Nú, ári seinna er varan tilbúin og komin í sölu.
Hvernig kviknaði þessi hugmynd?
Hugmyndin er í raun frá föður mínum, Inga Ragnari Sigurbjörnssyni, komin. Hann er alinn upp í sveit, Ártúni í Grýtubakkahreppi, og sem ungur maður var hann alltaf japlandi á stráum við búverkin. Ég á fimm systkini og á mínu æskuheimili á Akureyri voru aldrei keyptir tannstönglar heldur fór pabbi út í náttúruna og klippti niður strá í krukku og það voru tannstönglarnir á heimilinu.
Fjölskyldan hafði oft gantast með hvort ekki væri hægt að koma tannstönglunum í framleiðslu en hugmyndin fór þó ekki virkilega á flug fyrr en í fyrravetur þegar við hjónin tókum hana í okkar hendur í samstarfi við pabba.
En auðvitað er þetta ekkert ný hugmynd, það hafa allir sem eitthvað hafa verið úti í náttúrunni rifið upp strá og stangað úr tönnunum á sér. Við erum hinsvegar bara að koma þessu frábæra hráefni í notendavænar umbúðir.
Hvar tínirðu stráin?
Stráin eru týnd á Norðurlandi, á afgirtum svæðum þar sem búfénaður gengur ekki.
Með hvaða hætti fékkstu hjálp frá kerfinu til að vinna að framgangi hugmyndarinnar?
Ég kynnti hugmyndina á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni í fyrra þar sem hún fékk góðar viðtökur. Hugmyndin lenti í þriðja sæti sem hvatti mig til þess að koma henni áfram. Eins fékk ég nýsköpunarstyrk frá Landsbankanum til að koma vörunni í framleiðslu og það var auðvitað mikil hjálp í því að eiga fyrir útlögðum kostnaði.
Nú virðist afurðin 100% umhverfisvæn og skemmtileg er hún. Er hún líka arðbær?
Ef hún selst þá er hún arðbær. Fyrstu pakkarnir fóru í verlsanir í lok febrúar svo það er varla komin reynsla á það hvort varan sé að falla í kramið hjá neytendum, en jú fyrstu viðbrögð lofa góðu. Það er þó nokkur handavinna fólgin í þessu. Stráin eru handtýnd, handhreinsuð, handskorin og við límum pakkana saman sjálf. Ef áhugi verður fyrir þessari vöru þá þurfum við að betrumbæta vinnuferlið sem er seinlegt. Það hafa vissulega farið margar vinnustundir í það að koma verkefninu af stað en þetta ferli hefur bæði verið skemmtilegt og lærdómsríkt.
Það besta við tannstráin er ekki bara að þau eru umhverfisvæn og þjóðleg heldur nýtast þau mjög vel til tannhirðu. Þau eru passlega stíf til þess að hægt sé að stanga úr tönnunum með þeim og en eins virka þau líka eins og tannþráður þar sem þau eru hol að innan og leggjast saman sé þeim stungið á milli tannanna. Svo bera þau líka með sér keim af íslensku sumri, og því ekki amalegt að japla á þeim í svartasta skammdeginu.
Hvað fæst varan og hve mikið kostar pakki af tannstráum?
Hér fyrir norðan fást tannstráin í Hofi, Viking og Eymundsson og kostar askjan í kringum þúsund krónur út úr búð.
Er blaðamaðurinn verðandi bissnesskona í fullu starfi?!
Ja hver veit, ég hef a.m.k lært ýmislegt varðandi framleiðslu og viðskipti á því að koma tannstráunum á markað. Ég lít þó á tannstráin fyrst og fremst sem skemmtilegt verkefni. Ef við hjónin getum haft tekjur af því að liggja úti í móa með angan af íslensku sumri og týna strá þá verð ég að segja að ég get ekki hugsað mér betri sumarvinnu.
Hvað er fram undan - hvers vegna hættirðu á rúv? Saknarðu starfsins?
Allt hefur sinn tíma og það er ekki hægt að gera alla hluti í einu, svo einfalt er það. Að vinna í fréttum er krefjandi starf en það bitnar óneitanlega á einkalífinu að þurfa alltaf að vera til taks og með puttann á púlsinum. Ég á von á mínu þriðja barni eftir mánuð og með þrjú börn undir sex ára fannst mér fréttamennskan ekki henta mér lengur þó svo tíminn á fréttastofunni hafi verið bæði lærdómsríkur og skemmtilegur. En þó ég hafi hætt á RÚV þá er ekki þar með sagt að ég sé hætt í fjölmiðlum, enda unnið við fjölmiðlastörf í nærri 15 ár. Síðan ég hætti á fréttastofu RÚV hef ég t.d. verið að sinna greinarskrifum fyrir tímarit og dagskrárgerð fyrir sjónvarpsstöðina N4. Ég er líka með bók í vinnslu sem koma á út fyrir sumarið – svo það er nóg að frétta af mér þó ég sé ekki lengur í fréttunum.


