Enn verða tafir á því að Halldór Jónsson snúi aftur sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri þar sem leyfi hans frá störfum hefur ítrekað verið framlengt. Í svari við fyrirspurn Akureyrar vikublaðs fyrir skömmu sagði Halldór: „Eins og um var samið lauk námsleyfi mínu í lok janúar. Velferðarráðuneytið óskaði eftir að ég tæki að mér tiltekið verkefni í 6 - 8 vikur - sem reyndar er hér á landi en ekki erlendis eins og ranglega var sagt í Akureyri Vikublaði og ég reikna með að snúa aftur til starfa á FSA í byrjun apríl.“
Nú hefur Halldór tekið að sér annað sérverkefni fyrir ráðuneytið og hefur Bjarni Jónasson, settur forstjóri því verið skipaður forstjóri stofnunarinnar til 1. júní.
Í úttekt Embættis landlæknis og ummæli í skýrslu um að tveir hafi gegnt starfi forstjóra FSA í fjarveru Halldórs kemur fram að ,,slíkt geti verið óheppilegt og ekki til þess fallið að skapa samfellu í stjórnun”. Halldór segir enga ástæðu til að véfengja þau orð, enda feli þau ekki í sér fullyrðingu heldur hugleiðingu um möguleg áhrif ítrekaðra breytinga á yfirstjórn almennt séð.
„Sjálfur er ég ekki í stöðu til að dæma um aðstæður á FSA meðan á fjarveru minni stendur, en ég veit af eigin reynslu að þar er gott og traust starfsfólk,“ segir Halldór.



