„Kolaport“ í Europrishúsinu

"Kolaport" í Europrishúsinu

Rakel Bragadóttir

Nú um helgina, 12.-14. apríl verður haldinn markaður í Baldursnesi 8, húsnæði sem áður hýsti verslunina Europris. „Við erum tvær sem stöndum fyrir markaðinum,“ segir Rakel Bragadóttir, önnur kvennanna sem að markaðinum standa. „Við vorum farnar að finna að þörf væri á að koma á nokkurs konar Kolaporti hér fyrir norðan og vorum svo heppnar að fá þetta stóra og flotta húsnæði leigt. Höfum heyrt að fleiri og fleiri séu að keyra suður til þess að vera í Kolaportinu“.

„Þegar við fórum af stað með þessa hugmynd þá eiginlega grunaði okkur ekki hve þörfin væri mikil hérna og höfum við fengið mjög góðar viðtökur en á milli 60 og 70 aðilar hafa nú þegar skráð sig með sölu. Á markaðinum verður allt milli himins og jarðar til sölu. Bæði nýtt og notað, má þar nefna fatnað, skó, bækur, glervöru, efni, skartgripi og fleira,“ segir Rakel.

Markaðurinn verður opinn föstudag milli kl. 14-18, laugardag 11-18 og sunnudag 13-17. „Það er von okkar að Norðlendingar taki þessu vel og fólk verð duglegt að kíkja við og ef vel gengur höfum við hug á að endurtaka þetta,“ segir Rakel að lokum.

Ólína Þorvarðardóttir er á meðal þeirra sem sóttu um stöðuna

Ólína vill verða forseti

Fimm sóttu um stöðu sviðsforseta, hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri en Sigurður Kristinsson heimspekingur hefur gegnt embættinu sl. fimm ár. Umsækjendur eru Ólína ... Lesa »

Dráp á dýri vekur hörð viðbrögð

Eyþór Ingi Jónsson, organisti í Akureyrarkirkju og ljósmyndari með meiru, náði sl. mánudag mynd af kampsel sem hafði verið skotinn skammt frá ósum Eyjafjarðarár. Hann segir kampseli ... Lesa »

Björn Þorláksson

Helvíti á heimilum

Síðustu vikur hafa verið martröð fyrir skilvirka atvinnurekendur, frídagar hafa höggvið vinnuvikur í sundur, það bitnar á afköstum og áætlanagerð fyrirtækja en heilbrigt ... Lesa »

Búið að opna Hamborgarafabrikkuna

Í morgun kl. 11 opnaði Hamborgarafabrikkan á Akureyri á neðstu hæð Hótel KEA þar sem áður var veitingastaðurinn Súlnaberg og Terían. Ljósmyndari Akureyrar vikublaðs skrapp á ... Lesa »

MP banki opnar útibú á Akureyri

Í dag var tilkynnt um kaup MP banka á fyrirtækinu Íslensk verðbréf, sem hefur höfuðstöðvar á Akureyri og um leið var tilkynnt að MP banki muni opna útibú á Akureyri. Tilskilinn ... Lesa »

MP banki kaupir Íslensk verðbréf

MP banki hefur gert tilboð í allt hlutafé í Íslenskum verðbréfum hf. og hefur tilskilinn meirihluti eigenda félagsins gengið að skilmálum tilboðsins. MP banki hefur boðað ... Lesa »

Vaðlaheiðargöng afhent í desember 2016

Í morgun fór fram kynningarfundur fyrir stéttarfélögin á svæðinu um Vaðlaheiðargöng. Fundurinn fór fram á 3. hæð Alþýðuhússins á Akureyri og fór Jón Leví Hilmarsson, ... Lesa »

Vorsýning Myndlistaskólans verður um helgina

Hin árlega Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri verður opnuð laugardaginn 18. maí í húsnæði skólans Kaupvangsstræti 16. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og ... Lesa »

Lamb tekið með keisaraskurði í fjárhúsi í Þingeyjarsýslu

Sauðburður stendur nú sem hæst hjá bændum og líflegt er í fjárhúsum í öllum sveitum Þingeyjarsýslu. Á fjórða hundrað áa hafa borið hjá Þórarni Inga Péturssyni bónda á ... Lesa »

Stuðningsmyndband frá Dalvíkingum til Eyþórs Inga

Dalvíkingar eru - eins og flestir Íslendingar - stoltir af sínum manni í Eurovisionkeppninni. Hér er myndband sem Dalvíkingar hafa gert til stuðnings Eyþóri Inga. ... Lesa »

Jónasarkaffi og Uppnám í MA

Nemendur í íslensku í 3. bekk MA bjóða upp á Jónasarkaffi, dagskrá um ævi og verk Jónasar Hallgrímssonar í Kvosinni í MA fimmtudaginn, 16. maí, klukkan 16.30. Dagskráin er saman sett ... Lesa »

Í heimsókn í ÚA. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Nemendur VMA í norrænni samvinnu

Í vetur hafa nemendur og kennarar á viðskipta- og hagfræðibraut VMA tekið þátt í norrænu samstarfsverkefni - Nordplus Enterprising Education - með skólum í Finnlandi, Lettlandi, Litháen, ... Lesa »

Hundalíf

Á dögunum dvaldi ég í Hamburg í Þýskalandi. Hamburg er fögur borg, hrein og tignarleg með fjölskrúðugt mannlíf og frábæra hundamenningu. Nú gerðist ég sjálf hundaeigandi fyrir um ... Lesa »

Óhefðbundna stigablaðið fyrir Eurovisionkeppnina í kvöld

Þjóðrembustig - Skrillex-stig - Krútt-stig - Komrat-stig, Bling bling-stig, Schengen-stig, Borat-stig, Copy-paste-stig, Ég-er-svo-hissa-stig, Danska stigið og Ástsjúkastigið. Fyrri ... Lesa »

Opinn kynningarfundur um háskólabrú

Keilir verður með opinn kynningarfund um staðnám í Háskólabrú í samstarfi við SÍMEY, fimmtudaginn 16. maí. Fundurinn fer fram í Símey, Þórsstíg 4, og hefst kl. 16.00. Fundurinn er ... Lesa »

Mývetningar vilja ekki leggja náttúruna að veði

„Við erum nú ekkert örvæntingarfull í atvinnumálum hér í Mývatnssveitinni og þeir sem tóku til máls á fundinum sögðust ekki vera tilbúnir til að taka áhættuna á að ... Lesa »

Landsvirkjun lætur gera úttekt á umhverfismati Bjarnarflagsvirkjunar

Yfir 90 manns mættu í Reykjahlíðarskóla á opinn kynningarfund fyrir íbúa Skútustaðahrepps sem haldinn var síðdegis í dag. Þar greindu fulltrúar Landsvirkjunar frá undirbúningi og ... Lesa »

Raufarhöfn – áfangastaður framtíðarinnar

Á morgun, þriðjudaginn 14. maí verður haldið málþing í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn undir yfirskriftinni „Tækifæri á norðlægum slóðum: Raufarhöfn – ... Lesa »

Yfirlitssýning á handverki eldri borgara

Síðastliðinn laugardag var opnuð yfirlitssýning á handverki þeirra eldri borgara sem sótt hafa félagsstarf í Víðilundi og Bugusíðu í vetur. Sýningin stendur fram á fimmtudag, 16. ... Lesa »

Hús vikunnar: Lundargata 7 og Gránufélagsgata 10

Við höldum okkur við Lundargötuna og nú er það hús nr.7, en að hús byggði Ólafur Jónatansson járnsmiður árið 1895. Þá var húsið einlyft timburhús með háu portbyggðu risi. Hann ... Lesa »

Staðsetning gáma fyrir garðaúrgang

Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu ekki fjarlægja ... Lesa »

Góðir gestir hjá Tónlistarskólanum um helgina

25 manna hópur dansara, hljóðfæraleikara og söngvara voru gestir Tónlistarskólans á Akureyri um helgina en skólinn er aðili að verkefni sem hefur fengið styrk frá Nordisk ... Lesa »

Laktósafrí léttmjólk frá MS

Um tveggja ára skeið hefur MS unnið að þróun á svokallaðri laktósafrírri léttmjólk sem hentar vel þeim sem eru með mjólkuróþol. Í laktósafrírri mjólk er búið að fjarlægja ... Lesa »

Opinn fundur vegna Bjarnarflagsvirkjunar

Landsvirkjun býður til opins íbúafundar í Reykjahlíðarskóla í dag, mánudaginn 13. maí kl. 16.30. Þar munu fulltrúar frá Landsvirkjun munu greina frá undirbúningi og rannsóknum vegna ... Lesa »

Jafnrétti L-listans

Íslandsmeistararnir í knattspyrnu Þór/KA leika sinn fyrsta heimaleik á nýju keppnistímabili þann 7. maí. Þar ættum við öll að mæta og hvetja knattspyrnukonurnar til dáða. Þær urðu ... Lesa »

Skoða meira