Þessa dagana stendur Aflið fyrir happdrætti í samvinnu við Glerártorg. Sala er í fullum gangi en dregið verður úr seldum miðum á morgun, laugardaginn kl. 15:00 á Glerártorgi.
„Allar verslanir á Glerártorgi hafa gefið vinninga í happdrættið og kunnum við þeim og aðstandendum Glerártorgs bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag,“ segir Anna María Hjálmarsdóttir, formaður Aflsins en hún segir samfélagið hafa brugðist við af miklum krafti í kjölfar umræðu um fjárskort Aflsins og eftir að sýnt var fram á hversu fjárframlög ríkisins til samtakanna eru skorin við nögl.
„Við höfum fengið vilyrði fyrir 2 milljónum frá Velferðarráðuneytinu en það er aðeins lítið brot af því sem kostar að reka þjónustuna sem Aflið veitir. Við höfum sótt styrki til Akureyrarbæjar og sveitarfélaga hér á Norðausturlandi en það sem hefur skipt hvað mestu máli fyrir okkur er stuðningurinn úr samfélaginu. Fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar hafa staðið gríðarlega vel við bakið á okkur, sérstaklega eftir umræðuna síðustu daga og vikur,“ segir Anna.
Enn er hægt að kaupa miða en þeir eru seldir í verslununum Joe Boxer og BT á Glerártorgi auk þess sem á göngum Glerártorgs má rekast á stjórnar- og starfskonur Aflsins við sölu á miðum.
Á morgun, laugardag kl. 15:00 mun sr. Hildur Eir Bolladóttir draga úr seldum miðum en fyrir úrdráttinn ætlar hljómsveitin Kave að taka nokkur lög.


