Í fyrradag var þess minnst á Dalvík og í Eyjafirði að50 ár eru liðin frá því að ellefu sjómenn fórust í fárviðri við Norðurland, þar af sjö Dalvíkingar í blóma lífsins. Þetta gerðist í dymbilvikunni 1963. Dalvíkingarnir voru af vélbátunum Hafþóri og Val.
Athöfnin fór fram með því að trébátar lögðu úr höfn á Dalvík og Húsavík áleiðis að mynni Eyjafjarðar norður af Gjögrum yst á Flateyjarskagarskaga. Þar var blómakransi varpað í hafið í minningu þeirra er fórust í páskahretinu mikla 1963. Séra Magnús G. Gunnarsson, sóknarprestur á Dalvík, flutti minningarorð og svo var bautasteinn afhjúpaður við athöfn við Dalvíkurhöfn.
Steinninn var sérvalinn þar í hafnargarðinum haustið 2012 og fluttur suður í Kópavog til listrænnar meðhöndlunar og merkingar. Jón Adolf Steinólfsson, tréskurðarmeistari og listamaður, klappaði lágmynd í steininn. Þá flutti Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar og svo fór fram minningarathöfn í Dalvíkurkirkju.
Unnið er að gerð heimildarmyndar um sjóslysin og er gert ráð fyrir að frumsýna hana á Dalvík í ágúst í sumar í tengslum við Fiskidaginn mikla. Frumkvöðlar að minningarathöfninni, bautasteininum og heimildarmyndinni eru þrír Dalvíkingar, nú búsettir á höfuðborgarsvæðinu: Haukur Sigvaldason smiður, Stefán Loftsson kvikmyndagerðarmaður og María Jónsdóttir, textílhönnuður og nemandi í Margmiðlunarskólanum. Sigvaldi Stefánsson, faðir Hauks og afi Stefáns, var meðal þeirra er fórust 1963.


