Það er svo gott að sjá gott leikhús. Gott leikhús sem sendir mann heim á leið með strengi í kinnunum eftir bros og hlátur, auma lófa eftir klapp og hita i hjartanu eftir listræna örvun. Verkið Blam er virkilega gott leikhús.
Hann var með ólíkindum, hasarinn sem átti sér stað á stóra sviðinu í Hofi í gær. Flestir hafa líklega einhverntíman horft á hasarmyndir eins og Rambó, Hulk, Ironman og Bruce Lee en fáir séð hetjurnar berjast á leiksviði áður - hvað þá að fá svitann af þeim í andlitið. Neander leikhópurinn fer á kostum sem skrifstofustarfsmenn sem leika sér að því að sviðsetja atriði úr frægum bíómyndum. Hverjum hefði dottið í hug að hægt væri að bræða saman leikhús og bíó á þennan hátt og fá hvern einasta áhorfanda til að upplifa og hlæja - og það án orða!
Líkamsbeiting leikaranna fjögurra er alveg ótrúlega mögnuð. Það þarf rosalegt úthald til að halda uppi svona sýningu, sem varir í tæplega einn og hálfan tíma, og allir á fullu allan tímann. Eins og það sé ekki nóg þá þarf gríðarlega samhæfingu, upp á sekúndu, til að sum atriðin virki, svo enginn leikaranna má við því að missa einbeitinguna eitt sekúndubrot.
Verkið er ótrúleg töff, tónlistin, hljóð og ljós gerðu “byssó-leik“ skrifstofustarfsmannana svo raunverulegan og einlægan. Mann langaði til að fá að vera með.
Við og aðrir leikhúsgestir gátum ekki annað en risið úr sætum eftir sýninguna, þeir áttu það allir fullkomnlega skilið. Takk Kristján Ingimarsson og Neander leikhópurinn, þetta hóf okkur til skýjanna.
Svo hér í lokin eru nokkrar umsagnir af Facebook eftir sýninguna:
Fór að sjá Blam! í Hofi. Er eiginlega hálf ringlaður af gleði og æsingi eftir að heim er komið. Þessi sýning er - ég veit ekki alveg hvernig ég á að koma orðum að því - gjörsamlega framúrskarandi. VÁ segi ég en næ því samt ekki. (Þórgnýr Dýrfjörð)
BLAM!…Fór í Hof í kvöld á einstakan leiklistarviðburð. BLAM!…Einstök upplifun og áhrifin sterk BLAM! leið pínu á eftir eins og ég vildi annað hvort fara heim og horfa á Pulp Fiction, Kill Bill, Exspandables….eða fara út í sparka í ljósastaura ..semsagt örlítið upptjúnnaður og til í eitthvað. BLAM! Eitthvað sem enginn ætti að missa af…og eitthvað sem maður getur núið þeim um nasir sem misstu eða munu missa af. GAMAN. (Júlíus Júlíusson)
Hló veturinn í burtu á BLAM… (Þorbjörg Ásgeirsdóttir)


