„Mín ljóð eru minn innri maður en engin uppgerðarpóesí.“ Páll Ólafsson tókst á við lífið með kvæðum sínum. Lengst glímdi hann við ástina. Sett í tímaröð verða ljóð hans að lífsdagbók og lífssögu. Þórarinn Hjartarson bregður sér í líki Páls og flytur ljóðsögu hans í Ketilhúsinu Akureyri sunnudaginn 14. apríl kl. 16.
Þórarinn les allmörg ljóð Páls, og syngur heil 23 við lög sem flest eru nýleg. Svolítil frásögn er á milli ljóða sem gerir þetta að samhangandi sögu, sögunni hugnæmu um Pál og Ragnhildi. Fyrir ári síðan flutti Þórarinn dagskrána 15 sinnum á Landnámssetrinu í Borgarnesi við góðan orðstír. Verð kr. 2000. Þetta eina sinn. Ekki greiðslukort. Upplýsingar í síma 8682233.


