Hljómsveitin The Saints of Boogie Street verður með Leonard Cohen Tribute tónleika á Græna hattinum í kvöld, föstudagskvöld. Sveitin hefur starfað síðan í október 2010 og gaf fyrir ári síðan út diskinn Leonard Cohen Covered, sem nú er uppseldur að sögn hljómsveitarmeðlima.
Um sönginn sjá söngkonurnar Esther Jökulsdóttir og Soffía Karlsdóttir en undirleikur er í höndum Halldórs Gunnlaugs Haukssonar, Kristins Einarssonar, Ólafs Þórs Kristjánssonar og Péturs V. Péturssonar.
Á laugardagskvöldið eru það KK og Maggi Eiríks sem eins og lóan, koma með vorið norður og flytja öll sín bestu og ljúfustu lög, „og af nógu er nú að taka,“ eins og segir í kynningu.


