Hin árlega hljómsveitakeppni Menntaskólans á Akureyri Viðarstaukur, fór fram í vikunni í Kvosinni í MA. Í þriðja sæti var Lopabandið sem flutti lögin Midnight City með M83 og Sail með Awolnation. Í öðru sæti voru þeir Axel Flóvent og Bjarni Benediktsson en þeir fluttu tvö frumsamin lög.
Sigurvegarar kvöldsins varð hljómsveit sem enn hefur ekki hlotið nafn en í henni spila bræðurnir Anton Bjarki Jóhannesson, Atli Björn Jóhannesson, Finnbogi Jónsson, Karlotta Sigurðardóttir og Stefán Oddur Hrafnsson. Þau spiluðu þrjú lög.
Keppnin er haldin á vegum TóMA, tónlistarfélagsins í skólanum. Aðstandendur segja að allir keppendur hafi staðið sig með glæsibrag og áhorfendur skemmt sér vel. Akureyri vikublað náði tali af Antoni sem er einn lagahöfunda og leikur á gítar í sigursveitinni nafnlausu.
Kom sigurinn þér á óvart, Anton?
„Já, en mér fannst samt atriðið okkar flott. Við höfðum æft mikið fyrir þessa keppni en það kom á óvart að við skyldum vinna af því að það voru svo mörg önnur frábær atriði.“
Fluttuð þið eingöngu frumsamið efni?
„Já öll lögin sem við tókum voru frumsamin. Eitt eftir mig sem er ekki beint komið með nafn en við köllum það bara „Að Eilífu” og svo tvö eftir Karlottu. Fyrra lagið eftir hana sem við tókum er ekki ennþá komið með nafn en það seinna heitir „Love cursed“
Hér má hlusta á Love cursed í flutningi sveitarinnar.


