Vorráðstefna Advania fer fram í dag

Vorráðstefna Advania fer fram í dag

Vorráðstefna Advania á Akureyri er nú haldin í þriðja skipti og hefur stækkað ár frá ári. „Að þessu sinni gerum við ráð fyrir allt að 200 gestum, víðsvegar af Norðurlandi. Fróðleiksviðburðir sem þessir eru ríkur þáttur í starfsemi fyrirtækisins, en fyrirtækið heldur árlega um 40 viðburði af því tagi og þar leggjum við alltaf áherslu á alvöru fróðleiksmiðlun og forðumst sölukynningar eins og heitan eldinn,“ segir Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskiptasviðs Advania.

Vorráðstefnan er hálfs dags viðburður með dagskrá frá klukkan 13:00 til 17:30 þegar ráðstefnugestum er boðið til lokahófs.Ráðstefnan er opin öllu áhugasömu fólki í atvinnulífinu meðan húsrúm leyfir og þátttakan er gestum að kostnaðarlausu.

Dagskrá ráðstefnunnar er eftirleiðis:

13:00
Setning, Advania býður góðan dag
Gestur G. Gestsson, forstjóri

13:05
Skalanleg hönnun (responsive design) gjörbyltir vefhönnun
Ólafur Sverrir Kjartansson, þróunarstjóri

13:20
Viðskiptagreind er gagnlegt fyrirbæri við allra hæfi
Ragnar Már Magnússon, ráðgjafi

13:35
Að velja réttu viðskiptalausnina er vandasamt ferli
Gunnar Ingimundarson, framkvæmdastjóri

13:50
Microsoft SharePoint og staðlaðar lausnir fyrir stóra sem smáa (easySTART), ásamt tengingum við Dynamics AX og NAV
Sigvaldi Óskar Jónsson, ráðgjafi

14:05
HLÉ

14:25
Græjuhorn með fartölvum, spjaldvélum og svölum leikföngum
Páll Marcher Egonsson, vörustjóri

14:40
Svölu græjurnar líka notaðar í vinnunni (BYOD)
Bjarki Traustason, vörustjóri

14:55
Stórum upplýsingakerfum stýrt með litla putta
Steindór Arnar Jónsson, verkefnastjóri

15:10
Framtíðarsýn í afgreiðslulausnum og sjálfsafgreiðslu
Ívar Logi Sigurbergsson, vörustjóri

15:25
Að spara tíma og peninga með skráningarlausnum
Oddur Carl Thorarensen, ráðgjafi

15:40
HLÉ

16:00
Norðurorka nýtir sér upplýsingatækni til að hámarka arðsemi í rekstri
Helgi Jóhannesson, forstjóri

16:15
Skilvirk og örugg upplýsingakerfi frá fyrstu skóflustungu
Tryggvi R. Jónsson, deildarstjóri

16:35
Fjarskiptaheimurinn og þróun hans frá sjónarhóli Vodafone! Og hvað er þetta 4G?
Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tæknisviðs

16:55
Við erum öll sölumenn: Hugleiðing frá Capacent um mannlegt eðli
Hólmar Svansson, ráðgjafi

17:15
Innleiðing á sjónrænni stjórnun í Landsbankanum, upplifun útibússtjóra
Inga Á. Karlsdóttir, útibússtjóri

17:35
Lokahóf Vorráðstefnu Advania 2013
Töfrandi tónar og ljúfar veitingar við allra hæfi

Skráning og nánari upplýsingar á vef Advania

Ófært um Öxnadalsheiði

Öxnadalsheiði ófær

Stórhríð er nú á Öxnadalsheiði og hún ófær samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Einnig er ófært og stórhríð á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi en annars hálkublettir og ... Lesa »

Tveir fundir með frambjóðendum á Akureyri á morgun

Á morgun, mánudaginn 15. apríl, verða tveir fundir með fulltrúum flokka og framboða sem bjóða fram í Norðausturkjördæmi til komandi Alþingiskosninga. Áhugahópur um ... Lesa »

Eiga píratar erindi við landsbyggðina?

Efstu frambjóðendum á listum þeirra stjórnmálasamtaka sem bjóða fram til Alþingis var nýlega boðið að svara fjölmörgum spurningum fyrir kosningavef fjölmiðils. Framtakið er gott ... Lesa »

Fjallatindar í rafbók

Bókin Á fjallatindum eftir Bjarna E. Guðleifsson sem Bókaútgáfan Hólar gaf út árið 2009 er komin út á rafbókarformi. Þar segir frá gönguferðum á hæstu tinda í hverri sýslu ... Lesa »

„Erum ekki svo heppin að hafa varformann með hníf í baki formannsins“

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, tjáði sig um innanhússátökin í Sjálfstæðisflokknum á fundi með stuðningsmönnum í Samfylkingunni á Akureyri í dag. Lök staða ... Lesa »

Bílasýning í Hofi í dag

Stórsýning á Mercedes-Benz verður haldin í Hofi í dag. Meðal annars verður þar sýndur nýr A-Class, sem var valinn bíll ársins 2013 á Íslandi. Einnig verða sýndir B-Class sem býður ... Lesa »

Úr fréttastressinu í strá fyrir tennur

Vel tókst til með Atvinnu- og nýsköpunarhelgina sem fram fór fyrir nokkrum dögum á Akureyri. Snæfríður Ingadóttir, fyrrum fréttamaður á rúv, hefur góða reynslu af framtakinu en í ... Lesa »

Lífsdagbók ástarskálds

„Mín ljóð eru minn innri maður en engin uppgerðarpóesí.“ Páll Ólafsson tókst á við lífið með kvæðum sínum. Lengst glímdi hann við ástina. Sett í tímaröð verða ljóð hans ... Lesa »

Hvað viltu verða?

Eitt af þeim vandamálum sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir er hversu hátt hlutfall nemenda hættir námi á framhalds- og jafnvel háskólastigi. Þessi vandi er ekki nýr á nálinni og ... Lesa »

Ekki í aðstöðu til að dæma

Enn verða tafir á því að Halldór Jónsson snúi aftur sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri þar sem leyfi hans frá störfum hefur ítrekað verið framlengt. Í svari við fyrirspurn ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fá þeir bæjarbúar á Akureyri sem gefa smáfuglunum, segir kona sem hringdi í blaðið. Nú séu mjög stórir hópar farfugla á sveimi, ekki síst skógrþrestir og samkvæmt veðurspánni ... Lesa »

Stuðningur samfélagsins mikilvægastur

Þessa dagana stendur Aflið fyrir happdrætti í samvinnu við Glerártorg. Sala er í fullum gangi en dregið verður úr seldum miðum á morgun, laugardaginn kl. 15:00 á Glerártorgi. „Allar ... Lesa »

Varað við lúpínuseyði og frosnum berjum

Í eftirliti Heilbrigðiseftirlits Suðurlands kom í ljós að lúpínuseyði frá Svarta Hauki var framleitt við óheilnæmar aðstæður og hefur verið innkallað úr verslunum. Eru neytendur sem ... Lesa »

Gott að búa úti á landi núna

„Vegna mikillar fólksfjölgunar og yfirburða höfuðborgarsvæðisins gagnvart öðrum landshlutum hefur sú goðsögn verið lífseig að „fólksflótti sé frá landsbyggðinni“ og sú ... Lesa »

„Starfsemi Rúv ekki svipur hjá sjón“

„Miðað við 2,6 milljarða framlag ríkisins væri hlutdeild Norðausturkjördæmis rúmlega 320 milljónir en kostnaður stofnunarinnar í kjördæminu er hins vegar í raun tæplega ... Lesa »

Cohen tónleikar og ferðalög á Græna hattinum

Hljómsveitin The Saints of Boogie Street verður með Leonard Cohen Tribute tónleika á Græna hattinum í kvöld, föstudagskvöld. Sveitin hefur starfað síðan í október 2010 og gaf fyrir ... Lesa »

Vorráðstefna Advania fer fram í dag

Vorráðstefna Advania á Akureyri er nú haldin í þriðja skipti og hefur stækkað ár frá ári. „Að þessu sinni gerum við ráð fyrir allt að 200 gestum, víðsvegar af Norðurlandi. ... Lesa »

Eignalitli hópurinn gleymist

Auður Jónsdóttir rithöfundur segist undrast það mjög í pólitískri umræðu í aðdraganda þingkosninga hve lítið sé rætt um vanda leigjenda, en mestu púðrinu eytt í hvernig hægt sé ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Grunsamlega góð upplifun!

Öll göngum við til okkar daglegu verka, oft án þess að hugsa um það hvað geri það að verkum að við göngum til einmitt þessara verka og með nákvæmlega þeim hætti sem við gerum. Á ... Lesa »

„Kolaport“ í Europrishúsinu

Nú um helgina, 12.-14. apríl verður haldinn markaður í Baldursnesi 8, húsnæði sem áður hýsti verslunina Europris. „Við erum tvær sem stöndum fyrir markaðinum,“ segir Rakel ... Lesa »

Lát hjartað ráða för

„Við sem byggjum Ísland viljum skapa réttlátt samfélag þar sem allir sitja við sama borð.“ Stefna Lýðræðisvaktarinnar helgast af þessum upphafsorðum frumvarps Stjórnlagaráðs að ... Lesa »

Bræður í nafnlausri hljómsveit sem vann tónlistarkeppni MA

Hin árlega hljómsveitakeppni Menntaskólans á Akureyri Viðarstaukur, fór fram í vikunni í Kvosinni í MA. Í þriðja sæti var Lopabandið sem flutti lögin Midnight City með M83 og Sail með ... Lesa »

Bautasteinn í minningu sjómanna

Í fyrradag var þess minnst á Dalvík og í Eyjafirði að50 ár eru liðin frá því að ellefu sjómenn fórust í fárviðri við Norðurland, þar af sjö Dalvíkingar í blóma lífsins. ... Lesa »

Gott leikhús!

Það er svo gott að sjá gott leikhús. Gott leikhús sem sendir mann heim á leið með strengi í kinnunum eftir bros og hlátur, auma lófa eftir klapp og hita i hjartanu eftir listræna örvun. ... Lesa »

Orkugöngunni frestað

Vegna ótryggs veðurútlits hefur stjórn Orkugöngunnar tekið þá ákvörðun að fresta göngunni um óákveðinn tíma. Þetta á við um allar vegalengdir, 60 km – 20 km – 7 km og 1 ... Lesa »

Skoða meira