Í eftirliti Heilbrigðiseftirlits Suðurlands kom í ljós að lúpínuseyði frá Svarta Hauki var framleitt við óheilnæmar aðstæður og hefur verið innkallað úr verslunum. Eru neytendur sem eiga flösku Er því ljóst að varan uppfyllir ekki kröfur um öryggi matvæla og skal því innkölluð af markaði og frá neytendum. Þeir sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga.
Í dag ítrekaði Matvælastofnun einnig að varað væri við neyslu frosinna berja en sænska matvælastofnunin greindi frá því í gær að óvenju mörg tilfelli af lifrarbólgu A hafi komið upp í Svíþjóð að undanförnu. Uppruni smitsins er óþekktur en grunur leikur á að rekja megi smitið til frosinna berja. Nýlega varð mikil aukning á lifrarbólgutilfellum (A) í Danmörku sem rakin var til frosinna berja. Matvælastofnun telur því fulla ástæðu til að vara áfram við neyslu frosinna berja, en slík neysla er vinsæl í skyrdrykkjum hérlendis. Hægt er að fyrirbyggja smit með því að sjóða frosin ber í minnst eina mínútu áður en þau eru notuð í drykki eða aðra rétti sem ekki eru hitaðir.


