„Starfsemi Rúv ekki svipur hjá sjón“

„Starfsemi Rúv ekki svipur hjá sjón“

Snorrabúð stekkur? Starfsfólk Rúv á Akureyri hefur úr litlu að spila miðað við fyrri tímaStarfsstöð Rúv á Akureyri

„Miðað við 2,6 milljarða framlag ríkisins væri hlutdeild Norðausturkjördæmis rúmlega 320 milljónir en kostnaður stofnunarinnar í kjördæminu er hins vegar í raun tæplega þriðjungurinn af þeirri upphæð. Því má segja að greiðendur útvarpsgjalds greiði alla starfsemi stofnunarinnar í kjördæminu og leggi til viðbótar ríflega tvöfalda þá upphæð til starfseminnar í Reykjavík,“ segir í skýrslu Þórodds Bjarnasonar og Jóns Þorvaldar Heiðarssonar sem kom út fyrr á árinu.

Þetta vekur athygli í ljósi þess að enn er skorið niður hjá Akureyrardeild rúv samanber frétt blaðsins í síðustu viku um lækkað starfshlutfalli eina starfsmanns Rásar eitt á Akureyri. „Séu áætlaðar milljarðs tekjur vegna auglýsinga teknar með í reikninginn skekkist þessi mynd enn frekar og útgjöld RÚV teljast aðeins fjórðungur af hlutdeild kjördæmisins. Þótt starfsfólk Ríkisútvarpsins í Norðausturkjördæmi vinni mikið og gott starf er augljóst að fyrir 3–400 Mkr hlutdeild kjördæmisins í útgjöldum stofnunarinnar mætti efla fréttaþjónustu og dagskrárgerð til mikilla muna frá því sem nú er gert fyrir um 100 Mkr,“ segir ennfremur í skýrslu Þórodds og Jóns.

Jóhann Hauksson var forstöðumaður svæðisútvarps RÚV á Austurlandi 1999 til 2002 og yfirmaður RUVAK 2002 til 2005 og dagskrárstjóri Rásar 2 á sama tíma með aðsetur á Akureyri.Hann segir að árið 2003 hafi kostnaður RÚVAK verið nálægt 100 milljónum á ári og framreiknuð ætti sú upphæð að vera 183 milljónir króna. Þess í stað sé upphæðin lægri en fyrir 10 árum eða 76 millj. króna.

„ RÚV hefur lagaskyldur sem lúta að jafnræði borgaranna óháð búsetu. Enda er RÚV almannamiðill. Upplýsingarnar um misskiptingu útvarpsgjaldsins í skýrslu Þórodds og Jóns Þorvalds eru því óneitanlega umhugsunarverðar. Í nýjum lögum um RÚV segir að Ríkisútvarpið skuli gera ráðstafanir til að hægt sé að flytja fréttir og framleiða efni utan höfuðborgarsvæðisins með fastri starfsemi á völdum svæðum. Þessi starfsemi RÚV á landsbyggðinni er ekki svipur hjá sjón frá því sem var,“ segir Jóhann.

Upphæðin sem nú er varið til svæðisstöðva RÚV á Akureyri og Egilsstöðum er lægri en fyrir 10 til 15 árum þegar Jóhann stýrði þessum stöðvum fyrir RÚV. „Það er nálægt lagi að rekstur svæðisstöðva RÚV á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði hafi kostað samanlagt um 150 milljónir króna fyrir 10 árum. Núvirt nemur þetta 275 milljónum króna. Starfsemin á Ísafirði er nú sáralítil og framlögin til svæðisstöðvanna á Akureyri og Egilsstöðum voru liðlega 100 milljónir króna í fyrra. Þetta er meiri og alvarlegri niðurskurður en ég held að greiðendur útvarpsgjaldsins átti sig á.”

Jóhann segist vel muna eftir þegar stöðvarnar á Norðurlandi og Austurlandi framleiddu fyrir um áratug um 250 sjónvarpsfréttir á ári hvor um sig eða sem nemur einni frétt á dag alla virka daga ársins. „Og það var hreint ekki eina framleiðslan. Það verður að segjast eins og er að pólitískur stuðningur við uppbyggingu svæðistöðvanna var góður á þeim tíma. Nú er eins og OHF-un Ríkisútvarpsins hafi leitt til samþjöppunar dagskrárvalds og stefnumótunar sem fer að mestu fram án þess að almannavaldið - sem aflar fjár til rekstrarins - geti haft áhrif á stefnuna og framvindu mála. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig RÚV bregst við því ákvæði í nýju lögunum að Ríkisútvarpið skuli skapa vettvang fyrir aðkomu almennings að stefnumótun fjölmiðlunar í almannaþágu. Sjálfum fannst mér mjög vel til fundið á sínum tíma að flytja hluta af starfsemi Rásar 2 til Akureyrar og efla almenna dagskrárgerð þar. Tækni samtímans boðar að staðsetning skiptir æ minna máli í fjölmiðlun. Áherslur RÚV eru því gamaldags og greiðendur útvarpsgjaldsins ættu að leggja orð í belg þessa þróun.

Hann segir einnig einkennilegt að sjá Reykjavíkurteymi RÚV hendast um erfitt land til dagskrárgerðar fyrir Sjónvarpið þegar bæði kunnátta og tækni sé til í öllum fjórðungum til að framleiða dagskrá nánast af hvaða toga sem vera skal. „Mér er sama hvað miðlar í einkaeigu gera en ein helsta réttlætingin fyrir rekstri fjölmiðils, sem nýtur lögþvingaðra tekna frá almenningi, er að hann hafi jafnræðisreglu í heiðri.”

Árangurinn liggur fyrir

Opinberar hagtölur sýna, hvað sem öllu niðurrifstali líður, að umtalsverður árangur hefur náðst í efnahagsmálum, ekki síst ríkisfjármálum. Blönduð leið tekjuöflunar og sparnaðar ... Lesa »

Gísli Tryggvason

Hörð gagnrýni á Samherja

Gísli Tryggvason, sem skipar efsta sæti Dögunar í NA-kjördæmi gerir alvarlegar athugasemdir við þá stefnu Samherja að leyfa ekki pólitískum samtökum að kynna starfsmönnum fyrirtækisins ... Lesa »

Gróði bankanna í stökkbreytt lán

Framsókn hefur farið eins og flensa um landið á síðustu vikum og þar hafa loforðin um almenna niðurfærslu á húsnæðisskuldum með fé „hrægammasjóða“ úr þrotabúum bankanna ... Lesa »

Fuglakabarett

Sunnudaginn 21. apríl kl. 17:00 munu barnakórar og Stúlknakór Akureyrarkirkju ásamt hljómsveit sýna Fuglakabarett sem Daníel Þorsteinsson og Hjörleifur Hjartarson hafa samið sérstaklega ... Lesa »

Fylgi stjórnmálaflokka á félagsvísindatorgi

Á síðasta félagsvísindatorgi vetrarins hjá Háskólanum á Akureyri mun Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði, fara yfir skoðanakannanir og fylgi stjórnmálaflokka frá ... Lesa »

Aldnir í tölvuleiðsögn hjá nemendum MA

Áður hefur verið greint frá því að í vetur hafi verið bryddað upp á þeirri nýbreytni í samstarfi Félags eldri borgara og Menntaskólans á Akureyri að bjóða fullorðnu fólki að ... Lesa »

Mynd úr safni.

Ófært til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar

Ófært er frá Hofsósi til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar en einnig er vegurinn um Ólafsfjarðarmúla lokaður vegna snjóflóðahættu. Einnig eru Mývatnsöræfi ófær ásamt ... Lesa »

11 framboð í NA-kjördæmi

Í gær voru ellefu framboð samþykkt í Norðausturkjördæmi. Fjögur framboðanna; Björt framtíð, Hægri grænir, Flokkur heimilanna og Samfylkingin skiluðu ekki nógu mörgum meðmælendum. ... Lesa »

Nær helmingur landsmanna andvígur Bjarnarflagsvirkjun

Í könnun sem samtökin Landvernd létu gera kemur fram að 43,6 prósent svarenda andvíg virkjanaframkvæmdum í Bjarnarflagi en 30,5 prósent sögðust hlynnt framkvæmdinni. Aðalfundur ... Lesa »

Bílar, strætó og rúta föst á Öxnadalsheiði

Björgunarsveitarmenn frá Akureyri hafa verið síðustu klukkustundirnar á Öxnadalsheiðinni að aðstoða ökumenn sem fest höfðu bíla sína svo umferð stöðvaðist um heiðina. Rúta ... Lesa »

Ófært um Öxnadalsheiði

Öxnadalsheiði ófær

Stórhríð er nú á Öxnadalsheiði og hún ófær samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Einnig er ófært og stórhríð á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi en annars hálkublettir og ... Lesa »

Tveir fundir með frambjóðendum á Akureyri á morgun

Á morgun, mánudaginn 15. apríl, verða tveir fundir með fulltrúum flokka og framboða sem bjóða fram í Norðausturkjördæmi til komandi Alþingiskosninga. Áhugahópur um ... Lesa »

Eiga píratar erindi við landsbyggðina?

Efstu frambjóðendum á listum þeirra stjórnmálasamtaka sem bjóða fram til Alþingis var nýlega boðið að svara fjölmörgum spurningum fyrir kosningavef fjölmiðils. Framtakið er gott ... Lesa »

Fjallatindar í rafbók

Bókin Á fjallatindum eftir Bjarna E. Guðleifsson sem Bókaútgáfan Hólar gaf út árið 2009 er komin út á rafbókarformi. Þar segir frá gönguferðum á hæstu tinda í hverri sýslu ... Lesa »

„Erum ekki svo heppin að hafa varformann með hníf í baki formannsins“

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, tjáði sig um innanhússátökin í Sjálfstæðisflokknum á fundi með stuðningsmönnum í Samfylkingunni á Akureyri í dag. Lök staða ... Lesa »

Bílasýning í Hofi í dag

Stórsýning á Mercedes-Benz verður haldin í Hofi í dag. Meðal annars verður þar sýndur nýr A-Class, sem var valinn bíll ársins 2013 á Íslandi. Einnig verða sýndir B-Class sem býður ... Lesa »

Úr fréttastressinu í strá fyrir tennur

Vel tókst til með Atvinnu- og nýsköpunarhelgina sem fram fór fyrir nokkrum dögum á Akureyri. Snæfríður Ingadóttir, fyrrum fréttamaður á rúv, hefur góða reynslu af framtakinu en í ... Lesa »

Lífsdagbók ástarskálds

„Mín ljóð eru minn innri maður en engin uppgerðarpóesí.“ Páll Ólafsson tókst á við lífið með kvæðum sínum. Lengst glímdi hann við ástina. Sett í tímaröð verða ljóð hans ... Lesa »

Hvað viltu verða?

Eitt af þeim vandamálum sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir er hversu hátt hlutfall nemenda hættir námi á framhalds- og jafnvel háskólastigi. Þessi vandi er ekki nýr á nálinni og ... Lesa »

Ekki í aðstöðu til að dæma

Enn verða tafir á því að Halldór Jónsson snúi aftur sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri þar sem leyfi hans frá störfum hefur ítrekað verið framlengt. Í svari við fyrirspurn ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fá þeir bæjarbúar á Akureyri sem gefa smáfuglunum, segir kona sem hringdi í blaðið. Nú séu mjög stórir hópar farfugla á sveimi, ekki síst skógrþrestir og samkvæmt veðurspánni ... Lesa »

Stuðningur samfélagsins mikilvægastur

Þessa dagana stendur Aflið fyrir happdrætti í samvinnu við Glerártorg. Sala er í fullum gangi en dregið verður úr seldum miðum á morgun, laugardaginn kl. 15:00 á Glerártorgi. „Allar ... Lesa »

Varað við lúpínuseyði og frosnum berjum

Í eftirliti Heilbrigðiseftirlits Suðurlands kom í ljós að lúpínuseyði frá Svarta Hauki var framleitt við óheilnæmar aðstæður og hefur verið innkallað úr verslunum. Eru neytendur sem ... Lesa »

Gott að búa úti á landi núna

„Vegna mikillar fólksfjölgunar og yfirburða höfuðborgarsvæðisins gagnvart öðrum landshlutum hefur sú goðsögn verið lífseig að „fólksflótti sé frá landsbyggðinni“ og sú ... Lesa »

„Starfsemi Rúv ekki svipur hjá sjón“

„Miðað við 2,6 milljarða framlag ríkisins væri hlutdeild Norðausturkjördæmis rúmlega 320 milljónir en kostnaður stofnunarinnar í kjördæminu er hins vegar í raun tæplega ... Lesa »

Skoða meira