„Stóriðjubrölt á Bakka“

„Stóriðjubrölt á Bakka“

Ásta Svavarsdóttir

Fyrir nokkrum árum var tilkynnt að Alcoa hefði, allra náðsamlegast, valið Bakka við Húsavík sem næsta álversstað. Það braust út taumlaus gleði. Það var líkt og Húsavík hefði hreppt stóra vinninginn í Lottóinu. Fólk klæddi sig í álpappír og fagnaði í beinni útsendingu.

Ég ákvað umsvifalaust að berjast gegn þessu álveri. Ég gat m.a.s. haft hátt um það, ég er nefnilega aðflutt. Aðrir fóru með andstöðu sína eins og mannsmorð.

Nokkru seinna horfði ég á fréttir um nýjan Listaháskóla sem átti að troða inn í þrönga götumynd. Snilldarhugmynd laust niður í höfuðið á mér. Listaháskóla á Bakka! Ég bloggaði snilldina og fékk athugasemdir. Þetta var algjörlega ómögulegt. Kennararnir eru allir í hlutastörfum, þeir geta ekki flutt út á land. Merkilegt. Hér eru erlendir tónlistakennarar í flestum stöðum.

Dag einn sit ég og smyr flatbrauð með öðrum kvenfélagskonum. Gaspra um hugmyndina frábæru. Ein þeirra lítur upp, horfir í augun á mér og segir: „Við fáum hann aldrei“. Í tóninum, í augnaráðinu, skella á mér áratuga vonbrigði. Í eitt skelfilegt andartak er ég álverssinni.

Ég sit á spjalli við kunningja minn. Hann segir mér að það sé engin mjólkurframleiðsla lengur í Norður-Þingeyjarsýslu. Það séu bara tvö bú eftir á Tjörnesi. Mjólkurbíllinn fer þangað aðeins tvisvar í viku. ,,Hversu langt heldurðu að sé til, að Mjólkursamsalan geri þeim tilboð um að hætta?“ spyr hann mig. Ég hef engin svör.

Ég missi vinnuna og sit atvinnulaus í tvö og hálft ár.

Ég fer að sumarlagi í vettvangsferð með sveitarstjórnarmönnum Þingeyjarsveitar að skoða Þeistareyki og tilvonandi vinnusvæði. Það er fallegt þarna. Við hittum ein hjón á ferðalagi.

Ég samþykki orkuöflun á Þeistareykjum.

Alcoa hættir við álver á Bakka. Það stóð heldur aldrei til, það var bara að tryggja sér orkuna af Þeistareykjum.

Það er byrjað að semja um minni fyrirtæki á Bakka. Minni orkuþörf. Sennilega þarf ekki að hætta búskap í næsta nágrenni.

,,Fólk vill deyja á þúfunni sinni,“ segir maðurinn minn.

Þeistareykir eru komnir í tætlur. Heimamenn sem hafa smalað löndin árum saman eru með kökk í hálsinum. Þeir vilja þetta samt.

Hér viljum við búa. Hér viljum við deyja. Til þess verðum við að geta lifað hér.

Ásta Svavarsdóttir

Skoraði eftir 40 sekúndur í sínum fyrsta landsleik

Íshokkílandslið kvenna lék í dag fyrsta leik sinn í 2. deild heimsmeistaramótsins í Íshokkí. Landsliðið er að mestu leyti skipað leikmönnum frá Skautafélagi Akureyrar, þ.e. 13 ... Lesa »

86 jarðskjálftar við Grímsey

Mikil jarðskjálftahrina hefur verið 15-20 km. austur af Grímsey frá því í gær, páskadag. Alls hafa nú orðið 86 smáskjálftar á svæðinu frá því um fimmleytið á páskadagsmorgun. ... Lesa »

Vélsleðamenn vari sig á slysagildrum

Í dag slasaðist vélsleðamaður við Bíldsárskarð á Vaðlaheiði en björgunarsveitin Súlur voru kallaðar til og maðurinn var fluttur með snjóbíl á Sjúkrahúsið á Akureyri. Jón ... Lesa »

Slasaður vélsleðamaður í Vaðlaheiði

Björgunarsveitamenn á sleðum og fjórhjólum fóru á slysstað en einnig var snjóbill sendur með lækni. Gert er ráð fyrir að komið verði til byggða með hinn slasaða um kl. 17. ... Lesa »

Er upprisan brauðterta og marengs?

Ég man alltaf eftir kirkjugarðsdeginum heima í sveitinni í gamla daga. Þá komu menn saman í Laufásgarði að sumri, slógu gras, rökuðu, hreinsuðu í kringum leiðin, settu niður stjúpur ... Lesa »

Verslanir á Glerártorgi styðja við Aflið

Þessa dagana er hægt að taka þátt í happdrætti sem verslanir á Glerártorgi standa fyrir til styrktar Aflinu - samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Vinningar eru fjölmargir og ... Lesa »

Rögnvaldur gáfaði og Sigurvin Fíllin með Þorsteini Guðmundssyni

Þátturinn Hringborð grínistanna verður sendur út frá Akureyri í dag og þar munu þeir Rögnvaldur gáfaði, Sigurvin Fíllinn og Þorsteinn Guðmundsson leiða saman grínhesta sína og ... Lesa »

Óskar Pétursson og gestir

Það er svo sannarlega komin hefð á að Óskar Pétursson taki á móti landsþekktum listamönnum í Hofi um páskana. Í dag, laugardaginn 30. mars, tekur Óskar á móti ... Lesa »

„Stóriðjubrölt á Bakka“

Fyrir nokkrum árum var tilkynnt að Alcoa hefði, allra náðsamlegast, valið Bakka við Húsavík sem næsta álversstað. Það braust út taumlaus gleði. Það var líkt og Húsavík hefði ... Lesa »

Er dans fyrir alla?

„Í fyrra sagði fjörutíu og átta ára, þriggja barna faðir mér að hann ætti sér draum um að búa til dansverk og flytja það í heimabæ sínum, Akureyri. Ármann Einarsson er 172 cm. á ... Lesa »

Rósenborg

Að koma hlutunum frá sér á réttan hátt

Í dag, föstudaginn langa, ætlar JCI að standa fyrir fyrirlestri um framkomu og tjáningu. „Við fáum til okkar Tryggva Frey Elínarson sem er þaulvanur og skemmtilegur fyrirlesari. Hann ætlar ... Lesa »

Páskajóga í Orkulundi

Í dag, föstudaginn langa verða ýmsir páskaviðburðir tengdir jóga og íhugun í Orkulundi. Klukkan 15 hefst fjölskyldujóga, jógaviðburður fyrir alla fjölskylduna, sem Arnbjörg ... Lesa »

Landvernd skorar á Landsvirkjun að stöðva framkvæmdir við Bjarnarflag

Landvernd hefur farið fram á að stjórn Landsvirkjunar stöðvi nú þegar framkvæmdir við fyrirhugaða virkjun við Bjarnarflag og vinni nýtt mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar, en ... Lesa »

Amma Stella

Amma Stella fær stól á Bryggjunni

„Ef Amma Stella tæki upp á því að bjóða öllum afkomendum sínum á Nýju Bryggjuna þá færi hún langt með að fylla staðinn. Amma Stella er goðsögn í lifanda lífi, að minnsta kosti ... Lesa »

Presturinn í Hrísey vill ekki flytja á Möðruvelli

Á kirkjuþingi árið 2009 var sameining Möðruvallar- og Hríseyjarprestakalla ákveðin. Nú hefur sameiningunni verið frestað m.a. vegna þess að sóknarpresturinn í Hríseyjarprestakalli ... Lesa »

Skautafélag Akureyrar Íslandsmeistari

SA Víkingar enduðu íshokkítímabilið með tilþrifum þegar þeir lönduðu Íslandsmeistaratitlinum með 4-0 sigri á Birninum í oddaleik sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri í ... Lesa »

Söngkeppni framhaldsskólanna haldin á Akureyri í apríl

Á fundi síðastliðinn mánudag ákvað Sagafilm ásamt fulltrúum frá Sambandi Íslenskra framhaldsskóla að söngkeppni framhaldsskólanna 2013 yrði haldin á Akureyri helgina 19. – 21. ... Lesa »

Forgangsröðum á heillavænlegan hátt!

Á dögunum sendi samráðshópur Fjölskylduráðgjafar og Nýja barnsins á Heilsugæslustöðinni á Akureyri ákall til ráðamanna um að efna gefin heit og efla þjónustuna. ... Lesa »

Uppskrift að góðum páskum!

„Páskar eru í nánd. Sú staðreynd blasir ekki bara við okkur á dagatali, hún er sýnileg í umhverfinu, brátt birtir við dagrenningu og nóttin rennur saman við morguninn. Í anddyri ... Lesa »

Paradiso í Ketilhúsinu

Akureyringurinn og fjöltónlistarmaðurinn Matthías Stefánsson herjar á Norðurlandið nú í dymbilvikunni ásamt félaga sínum Jónasi Þóri píanóleikara en í gærkvöldi héldu þeir ... Lesa »

Akureyri eignast sína Kárahnjúka?

Auðvitað er það ekki þannig þegar bornar eru saman virkjanaframkvæmdir við Kárahnjúka og hugsanlegar virkjanaframkvæmdir á Glerárdal. En meginhugsun og ef til vill niðurstaðan er sú ... Lesa »

Aðgerðarhópur vegna leyfislausra gististaða

Samtök ferðaþjónustunnar lögðu í mikla vinnu árið 2011 við að finna leyfislausa gististaði og þrýstu í kjölfarið á stjórnvöld að taka á vandanum, benda viðkomandi á að sækja ... Lesa »

Athugað með auðgunarbrot hjá umsækjendum á Öldrunarheimilum

Félagsmálaráð samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að til viðbótar venjubundinni beiðni til sakaskár komi viðbót varðandi auðgunarbrot, þegar aflað er sakavottorða vegna ... Lesa »

Hús vikunnar: Norðurgata 16 og 26

Hús vikunnar eru tvö og við höldum okkur við hús Sveinbjarnar Jónssonar, en ég hef sl. tvö skipti tekið fyrir verk hans en húsin sem hann annaðhvort teiknaði eða byggði á Akureyri og ... Lesa »

Rétt laun um páskana

Stéttarfélagið Eining-Iðja hefur sent frá sér áminningu um launagreiðslur um páska. Þar er minnt á að samkvæmt kjarasamningum beri að greiða starfsfólki álag á stórhátíðum, en ... Lesa »

Skoða meira