Skautafélag Akureyrar Íslandsmeistari

Skautafélag Akureyrar Íslandsmeistari

Íslandsmeistarar. Mynd: Sigurgeir Haraldsson

SA Víkingar enduðu íshokkítímabilið með tilþrifum þegar þeir lönduðu Íslandsmeistaratitlinum með 4-0 sigri á Birninum í oddaleik sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri í gærkvöldi. Lars Foder skoraði þrennu, Ómar Smári Skúlason varði eins og berserkur þegar sókn Bjarnarins þyngdist.

Svona lýsa SA menn leiknum:

Fyrsti leikhluti - Vel stemmdir til leiks
SA Víkingar virtust koma vel stemmdir til leiks og spiluðu af krafti, bæði sókn og vörn. Leikirnir hingað til hafa verið nokkuð kaflaskiptir, liðin hafa bæði skorað nokkur mörk í röð í leikjunum og hitt liðið þá stundum virst heillum horfið á meðan. Til að mynda mættu Víkingar seint til leiks í fjórða leiknum á mánudagskvöldið og lentu 3-0 og 4-1 undir. Þjálfarar og leikmenn beggja liða vissu því fyrir þennan leik hve mikilvægt það væri að byrja af krafti og freista þess að ná tökum á leiknum. Vel studdir af fjölmörgum áhorfendum sem fylltu pallana og rúmlega það voru Víkingar sprækari en gestirnir í upphafi.

Það var kannski góðs viti að fyrsta brottvísunin í leiknum var á leikmann Bjarnarins um miðbik fyrsta leikhluta, en þeir hafa einmitt verið mjög hættulegir og fljótir að skora þegar þeir hafa verið einum fleiri. Okkar mönnum hefur reyndar stundum ekki gengið nógu vel að nýta sér liðsmuninn, en til að auðvelda þeim það fór annar Bjarnarmaður í boxið, Róbert Pálsson varð fyrir því óláni að senda pökkinn út af úr eigin varnarsvæði.

Tveimur færri náðu Bjarnarmenn þó að stela pökknum, en Víkingar náðu honum strax aftur, héldu ró sinni og spiluðu sín á milli þar til færi gafst að sækja að markinu. Lars Foder fékk pökkinn fyrir utan, hótaði skoti, en sendi pökkinn þess í stað til Stefáns Hrafnssonar hægra megin, hann sendi hann áfram inn að markinu þar sem Ingvar Þór Jónsson tók á móti honum og laumaði honum í markið. Vel útfært og vel afgreitt. Mikilvægt að skora fyrsta markið í leiknum.

Þetta reyndist reyndar eina markið í fyrsta leikhlutanum, en bæði lið fengu þó færi, Víkingar heldur fleiri og hættulegri en gestirnir. Við lokaflautið fékk síðan Úlfar Jón Andrésson refsingu og Víkingar hófu því annan leikhlutann einum fleiri. Þrjár fyrstu refsingarnar voru á Bjarnarmenn, enda hafa Víkingar væntanlega gert sér grein fyrir mikilvægi þess að halda refsimínútunum í lágmarki. Ekki aðeins til að losna við að spila einum færri, heldur einnig til að vinna sálfræðistríðið því með refsingum eykst pirringur sem að sjálfsögðu hefur áhrif á leik liðsins.

Birkir Árnason, fyrirliði Bjarnarins, sem í fyrra lyfti Íslandsbikarnum í fyrsta skipti í sögu karlaliðs félagsins, lék ekki með Birninum í fjórða leiknum á mánudagskvöld vegna meiðsla. Hann reyndi að spila í kvöld, var með í fyrsta leikhluta, en meiðslin voru honum greinilega fjötur um fót og hann skellti sér bara í sturtu og kom ekki meira við sögu í leiknum. Þar var auðvitað skarð fyrir skildi hjá liði Bjarnarins.

Annar leikhluti - Vonin staðfest

Hart barist. Mynd: Sigurgeir Haraldsson

Þegar leið á annan leikhluta þyngdist sókn Bjarnarins nokkuð. Eftir refsingalausan fyrsta leikhluta fengu Víkingar þrjá tveggja mínútna dóma í öðrum leikhlutanum, eins og Bjarnarmenn. Öfugt við það sem gerðist í þriðja leiknum hér á Akureyri tókst Bjarnarmönnum ekki að nýta sér það að spila einum fleiri í þetta skiptið. Víkingar voru áfram grimmir í vörninni, alltaf tilbúnir á réttum stað og þau skot sem rötuðu framhjá varnarmönnum og á markið varði frábær markvörður liðsins, Ómar Smári Skúlason. Eftir á að hyggja má jafnvel orða það sem svo að Ómar Smári hafi unnið leikinn í öðrum leikhluta. Með frábærri frammistöðu lagði hann grunn að lokaþætti leikritsins og sló á titilvonir gestanna.

Þegar leikskýrslan er skoðuð sést að skot á mark voru álíka mörg frá báðum liðum fyrsta leikhluta, en í öðrum leikhluta varði Ómar Smári 16 skot á móti 6 vörðum skotum Styrmis í marki Bjarnarins.

Hvorugu liðinu tókst að skora í öðrum leikhluta og þrátt fyrir aðeins eins marks forystu hafði sá sem þetta ritar á tilfinningunni alveg frá byrjun að Víkingar myndu sigra og sú trú styrktist í öðrum leikhluta með öflugum varnarleik og frábærri markvörslu.

Þriðji leikhluti - Frábær liðsheild, frábærir einstaklingar
SA Víkingar skoruðu síðan annað markið eftir nokkurra mínútna leik í þriðja leikhluta og þá má segja að Björninn hafi verið unninn. Eftir það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda. Víkingar gáfu ekkert eftir, héldu áfram sömu baráttu, skautuðu á fullu, tækluðu og létu Bjarnarmenn finna vel fyrir sér. Titilvon Bjarnarmanna fjaraði smátt og smátt út og á lokamínútunum var eins og aukakraftur kæmi úr stúkunni og með vitneskjunni um að bikar færi á loft SA-megin tóku Víkingarnir endanlega öll völd á svellinu og bættu við tveimur glæsilegum mörkum á sama tíma og Bjarnarmenn sáu tækifærið renna sér úr greipum og gáfu eftir.

Lars Foder átti frábæran leik, skoraði þrjú mörk og átti eina stoðsendigu. Ómar Smári Skúlason var frábær í markinu. En þegar upp er staðið var það liðsheildin sem skilaði SA Víkingum þessum titli. Ingvar Þór Jónsson þjálfari verður að teljast sigurvegari vetrarins því hann hefur ekki aðeins staðið sem klettur í vörninni heldur tók hann við þjálfun liðsins fyrir þetta tímabil, nánast sem greiða við félagið þar sem ekki hafði tekist að finna annan þjálfara, og skilaði frábærum árangri.

Mörk/stoðsendingar
SA Víkingar
Lars Foder 3/1
Ingvar Þór Jónsson 1/0
Stefán Hrafnsson 0/3
Hermann Knútur Sigtryggsson 0/1
Björn Már Jakobsson 0/1Sigurður Sveinn Sigurðsson 0/1
Refsingar: 12 mínútur
Varin skot: 33 (10+16+7)

Björninn
Refsingar: 14 mínútur
Varin skot: 39 (14+6+19)

Tenglar á viðtöl
Sá sem þetta ritar ákvað að sleppa viðtölum við leikmenn og láta þess í stað fagmennina um það verk - vísa bara í umjföllun og viðtöl á hinum ýmsu fjölmiðlum. Hér að neðan eru tenglar á umfjöllun fjölmiðla um leikinn, textalýsingar og viðtöl við leikmenn. Nú þegar er komið inn myndaalbúm frá Elvari Frey Pálssyni á sasport.is, auk þess sem Sigurgeir Haraldsson á myndirnar í þessari frétt. Búast má við mun fleiri myndum inn á sasport.is innan tíðar því okkar frábæri ljósmyndaraher var með linsurnar á lofti.

Mbl.is
Viðtal við Birki Árnason, fyrirliða Bjarnarins:
Bein textalýsing mbl.is
Viðtal við Sigga Sig – þið losnið ekkert við mig

visir.is
Bein textalýsing og viðtöl við Orra Blöndal, Ómar Smára Skúlason og Lars Foder

ruv.is
Mörk, viðtöl og bikarafhending

Sport.is
Myndasafn Elvars Freys Pálssonar

Texti og myndir af vef Skautafélags Akureyrar

Kviss búmm bang og Leikfélag Akureyrar bjóða til fermingarveislu

Fimmtudaginn 4. apríl frumsýnir framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang í samvinnu við Leikfélag Akureyrar sýninguna Lög unga fólksins í Hlíðarbæ í Hörgársveit. Boðið er í ... Lesa »

Húsgagnahöllin opnar á Akureyri

Húsgagnahöllin mun opna verslun á Akureyri mun í maí nk. en nú hefur verið skrifað undir leigusamning um tæplega 1.400 fermetra verslunarhúsnæði að Dalsbraut 1 við Glerá á Akureyri en ... Lesa »

Tækifæri í tónlist

Föstudaginn 5. apríl kl. 14:30 gefst Akureyringum kostur á að kynna sér starf Ásdísar Arnardóttur sellóleikara og tónlistarkennara en hún verður með fyrirlestur stofu M01 í ... Lesa »

Tvær flugur í einu höggi

Árið 1984, þegar ég var 2ja ára, kom út lagið "Hjálpum þeim". Ég féll fyrir þessu lagi strax og ég man að ég sat og hlustaði á þetta lag aftur og aftur og horfði á myndina af litla ... Lesa »

Ak Extreme hefst á fimmtudag

Hátíðin Ak Extreme verður sett á fimmtudag og stendur i þrjá daga. Stærsti viðburðurinn er keppni og sýning sem fram fer á risastórum snjóbrettapalli sem byggður verður í Gilinu og ... Lesa »

Fjör á opnun Bryggjunnar

Mikið fjör var þegar veitingastaðurinn Bryggjan var opnuð á nýjum stað við Strandgötu 49 sem er elsta húsið á Oddeyrinni. Veitingastaðurinn opnaði formlega föstudaginn langa, en ... Lesa »

Óvissustig vegna jarðskjálfta úti fyrir Norðurlandi

Að höfðu samráði við vísindamenn, lögreglustjórana á Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík lýsir ríkislögreglustjóri yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir ... Lesa »

Sterkur jarðskjálfti við Grímsey í nótt

Rétt um klukkan eitt í nótt urðu tveir sterkir jarðskjálftar austan við Grímsey. Stærð skjálftanna var 5,4 og 5,3 og áttu þeir upptök sín um 15 km austur af Grímsey. Talsverð ... Lesa »

Skoraði eftir 40 sekúndur í sínum fyrsta landsleik

Íshokkílandslið kvenna lék í dag fyrsta leik sinn í 2. deild heimsmeistaramótsins í Íshokkí. Landsliðið er að mestu leyti skipað leikmönnum frá Skautafélagi Akureyrar, þ.e. 13 ... Lesa »

86 jarðskjálftar við Grímsey

Mikil jarðskjálftahrina hefur verið 15-20 km. austur af Grímsey frá því í gær, páskadag. Alls hafa nú orðið 86 smáskjálftar á svæðinu frá því um fimmleytið á páskadagsmorgun. ... Lesa »

Vélsleðamenn vari sig á slysagildrum

Í dag slasaðist vélsleðamaður við Bíldsárskarð á Vaðlaheiði en björgunarsveitin Súlur voru kallaðar til og maðurinn var fluttur með snjóbíl á Sjúkrahúsið á Akureyri. Jón ... Lesa »

Slasaður vélsleðamaður í Vaðlaheiði

Björgunarsveitamenn á sleðum og fjórhjólum fóru á slysstað en einnig var snjóbill sendur með lækni. Gert er ráð fyrir að komið verði til byggða með hinn slasaða um kl. 17. ... Lesa »

Er upprisan brauðterta og marengs?

Ég man alltaf eftir kirkjugarðsdeginum heima í sveitinni í gamla daga. Þá komu menn saman í Laufásgarði að sumri, slógu gras, rökuðu, hreinsuðu í kringum leiðin, settu niður stjúpur ... Lesa »

Verslanir á Glerártorgi styðja við Aflið

Þessa dagana er hægt að taka þátt í happdrætti sem verslanir á Glerártorgi standa fyrir til styrktar Aflinu - samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Vinningar eru fjölmargir og ... Lesa »

Rögnvaldur gáfaði og Sigurvin Fíllin með Þorsteini Guðmundssyni

Þátturinn Hringborð grínistanna verður sendur út frá Akureyri í dag og þar munu þeir Rögnvaldur gáfaði, Sigurvin Fíllinn og Þorsteinn Guðmundsson leiða saman grínhesta sína og ... Lesa »

Óskar Pétursson og gestir

Það er svo sannarlega komin hefð á að Óskar Pétursson taki á móti landsþekktum listamönnum í Hofi um páskana. Í dag, laugardaginn 30. mars, tekur Óskar á móti ... Lesa »

„Stóriðjubrölt á Bakka“

Fyrir nokkrum árum var tilkynnt að Alcoa hefði, allra náðsamlegast, valið Bakka við Húsavík sem næsta álversstað. Það braust út taumlaus gleði. Það var líkt og Húsavík hefði ... Lesa »

Er dans fyrir alla?

„Í fyrra sagði fjörutíu og átta ára, þriggja barna faðir mér að hann ætti sér draum um að búa til dansverk og flytja það í heimabæ sínum, Akureyri. Ármann Einarsson er 172 cm. á ... Lesa »

Rósenborg

Að koma hlutunum frá sér á réttan hátt

Í dag, föstudaginn langa, ætlar JCI að standa fyrir fyrirlestri um framkomu og tjáningu. „Við fáum til okkar Tryggva Frey Elínarson sem er þaulvanur og skemmtilegur fyrirlesari. Hann ætlar ... Lesa »

Páskajóga í Orkulundi

Í dag, föstudaginn langa verða ýmsir páskaviðburðir tengdir jóga og íhugun í Orkulundi. Klukkan 15 hefst fjölskyldujóga, jógaviðburður fyrir alla fjölskylduna, sem Arnbjörg ... Lesa »

Landvernd skorar á Landsvirkjun að stöðva framkvæmdir við Bjarnarflag

Landvernd hefur farið fram á að stjórn Landsvirkjunar stöðvi nú þegar framkvæmdir við fyrirhugaða virkjun við Bjarnarflag og vinni nýtt mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar, en ... Lesa »

Amma Stella

Amma Stella fær stól á Bryggjunni

„Ef Amma Stella tæki upp á því að bjóða öllum afkomendum sínum á Nýju Bryggjuna þá færi hún langt með að fylla staðinn. Amma Stella er goðsögn í lifanda lífi, að minnsta kosti ... Lesa »

Presturinn í Hrísey vill ekki flytja á Möðruvelli

Á kirkjuþingi árið 2009 var sameining Möðruvallar- og Hríseyjarprestakalla ákveðin. Nú hefur sameiningunni verið frestað m.a. vegna þess að sóknarpresturinn í Hríseyjarprestakalli ... Lesa »

Skautafélag Akureyrar Íslandsmeistari

SA Víkingar enduðu íshokkítímabilið með tilþrifum þegar þeir lönduðu Íslandsmeistaratitlinum með 4-0 sigri á Birninum í oddaleik sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri í ... Lesa »

Söngkeppni framhaldsskólanna haldin á Akureyri í apríl

Á fundi síðastliðinn mánudag ákvað Sagafilm ásamt fulltrúum frá Sambandi Íslenskra framhaldsskóla að söngkeppni framhaldsskólanna 2013 yrði haldin á Akureyri helgina 19. – 21. ... Lesa »

Skoða meira