Í dag slasaðist vélsleðamaður við Bíldsárskarð á Vaðlaheiði en björgunarsveitin Súlur voru kallaðar til og maðurinn var fluttur með snjóbíl á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Jón Gunnar Benjamínsson, vélsleðamaður var einn þeirra sem komu að slysinu en hann segir mikilvægt að vélsleðafólk sé vakandi fyrir því að ýmsar hættur leynist á fjöllum. Hann tók meðfylgjandi mynd og skrifaði eftirfarandi texta til þess að hvetja fólk til að sýna gætni í vélsleðaferðum á þessu svæði.
„Í sleðaferð dagsins fengum við harkalega áminningu um að sleðamennska á fjöllum er ekki hættulaust sport. Við Bíldsárskarð fengum við fregnir af því að skammt frá okkur væri talsvert slasaður vélsleðamaður. Eftir stutta leit fundum við hann ásamt tveimur félögum hans. Einnig bar þar að björgunarsveitarmann á sleða sem var byrjaður að hlúa að hinum slasaða en hann kvartaði um mikla verki í baki. Á þessari mynd má sjá slysagildruna - mýrarfen þar sem jarðhiti nær að bræða snjóinn jafnóðum. Sleðinn hafði verið að koma úr suðri og trúlega hefur ökumaðurinn gefið í í stað þess að hemla því engin ummerki um að hann hafi reynt að hemla, sáust á bakkanum. Sleðinn hefur því næst skollið með talsverðu afli í bakkann á móti þar sem hann stendur ofan í pyttinum. Ökumaðurinn hafði henst ca. 17 metra frá staðnum sem sleðinn skall í bakkanum. Engin ummerki um að sleðinn hefði snert botninn voru sjáanleg. Á þessu svæði fundum við þrjár slíkar volgrur. Þessi er lang stærst. Mikið er af sleðaförum allt í kring og ástæða til að vara allt sleðafólk að sýna gætni á þessu svæði sem er ca. 50-100m norðan við raflínuna í Bíldsárskarði, Eyjafjarðar-megin.“


