Á kirkjuþingi árið 2009 var sameining Möðruvallar- og Hríseyjarprestakalla ákveðin. Nú hefur sameiningunni verið frestað m.a. vegna þess að sóknarpresturinn í Hríseyjarprestakalli vill ekki flytja yfir á Möðruvelli.
Sameining prestakallanna átti að taka gildi um leið og annar presturinn í þessum tveimur prestaköllum léti af störfum. Það gerðist svo 1. september síðastliðinn að presturinn í Möðruvallasókn var valinn vígslubiskup á Hólum og þar með átti presturinn í Hrísey að taka við og flytjast að Möðruvöllum þar sem ákveðið hafði verið að prestur yfir þessum sameinuðu prestaköllum hefði búsetu.
Um þetta mál er fjallað í Páskablaði DV.

