Mikil jarðskjálftahrina hefur verið 15-20 km. austur af Grímsey frá því í gær, páskadag. Alls hafa nú orðið 86 smáskjálftar á svæðinu frá því um fimmleytið á páskadagsmorgun. Flestir eru skjálftarnir milli 1,5-2 en sá stærsti var 2,8 og átti sér stað kl. 17:26 í gær.
Skjálftahrinur eru ekki óalgengar á þessum slóðum og segja jarðvísindamenn ekkert að óttast.


