Í dag, föstudaginn langa verða ýmsir páskaviðburðir tengdir jóga og íhugun í Orkulundi.
Klukkan 15 hefst fjölskyldujóga, jógaviðburður fyrir alla fjölskylduna, sem Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir jógakennari sér um. „Við gerum jógaæfingar, förum í leiki, slökum á og hugleiðum og syngjum saman við gítarundirspil í lok tímans,“ segir Arnbjörg.
Klukkan 17 hefst Kundalini jógatími ásamt hugleiðslu og djúpslökun við gongspil. „Þá gerum við Kundalini jóga æfingasett, hugleiðslu og njótum heilandi tóna gongsins í lokin. Tónarnir losa spennu úr taugakerfinu, hjálpa til við að hreinsa hugann og færa djúpa kyrrð,“ segir Arnbjörg sem einnig kennir þennan tíma. „Þemað í þessum tíma er geislabaugurinn og fjallað verður um hann frá jógísku sjónarmiði og gerð hugleiðsla sem ég lærði hjá jógískum heilunarmeistara erlendis í lok janúar síðastliðinn. Þessi hugleiðsla færir okkur mikla orku og styrkir geislabauginn. Það hjálpar okkur að velja í vitund í lífinu og eflir heilsuna almennt“.
Klukkan 19:45 dunar lífsorkudansinn en sá tími samanstendur af dansi og slökun. „Dansinn er endurnærandi og losar um streitu og spennu í líkamanum, eina sem þarf er líkami, tónlist og dans. Þetta er frjáls danshreyfing við tónlist sem sett er saman sérstaklega fyrir hvern tíma. Í tilefni páskanna verður tónlistin á nótum heilagleikans og við einblínum mest á ether og finnum fyrir djúpum tengslum andardráttar og hreyfingar og hugleiðum inná við,“ segir Sólveig Haraldsdóttir, en hún leiðbeinir þátttakendum í þessum danstíma.
Á milli tíma verða ýmsar veitingar í boði. Nánari upplýsingar um dagskrána og verð má finna hér.

