Sigurvin Fíllinn og Rögnvaldur gáfaði verða líklega hressari í þættinum á Rás 2 í dag en þeir virðast hafa verið þegar þessar myndir voru teknar
Þátturinn Hringborð grínistanna verður sendur út frá Akureyri í dag og þar munu þeir Rögnvaldur gáfaði, Sigurvin Fíllinn og Þorsteinn Guðmundsson leiða saman grínhesta sína og láta gamminn geysa. Rædd verða málefni aldraðra, vandi hjónabandins og annað sem þykir tilvalið í léttum spjallþáttum. Aðdáendur Steve Miller band ættu að leggja við hlustir.
Þátturinn er í beinni útsendingu á Rás 2 og hefst kl 12:47 í dag.

