Á fundi síðastliðinn mánudag ákvað Sagafilm ásamt fulltrúum frá Sambandi Íslenskra framhaldsskóla að söngkeppni framhaldsskólanna 2013 yrði haldin á Akureyri helgina 19. – 21. apríl næstkomandi.
Keppnin verður mun stærri og með öðru sniði en síðustu ár en undankeppni verður haldin á föstudagskvöldinu í Íþróttahöllinni og verður henni hvorki sjónvarpað né útvarpað og munu því aðeins áhorfendur í sal njóta allra atriða en á laugardagskvöldinu verður bein útsending á Rúv frá úrslitum keppninnar þar sem 12 bestu atriðin keppast um sigurinn.

