Á fundi skipulagsnefndar sl. miðvikudag var tekið fyrir erindi frá Innbæjarsamtökunum um að akstursstefnu Spítalavegar verði breytt.
Íbúasamtökin sendu frá sér svohljóðandi ályktun um breytta akstursstefnu sem var samþykkt á almennum íbúafundi í Laxdalshúsi þann 5. júlí sl.:
Almennur fundur Innbæjarsamtakanna - hagsmunasamtaka íbúa, telur mjög mikilvægt að akstursstefnunni í neðsta hluta Spítalavegar verði snúið við, ekið verði upp brekkuna.
1. Spítalavegur hefur í gegnum tíðina verið mikilvæg tengileið íbúa í Innbænum upp á Brekkuna, rakleiðis upp að Spítalanum, að Menntaskólanum og að Brekkuskóla.
2. Einstefna niður Spítalaveg hefur beint umferðinni upp Lækjargötu, en þar er umferðin allt of mikill. Þess vegna er æskilegt að deila umferðinni á þessar tvær götur. Vísað er í nýlega umferðartalningu á vegum bæjarins þar sem mældust 700 bílar yfir eina helgi.

