Stéttarfélagið Eining-Iðja hefur sent frá sér áminningu um launagreiðslur um páska. Þar er minnt á að samkvæmt kjarasamningum beri að greiða starfsfólki álag á stórhátíðum, en stórhátíðadagar um páskana eru föstudagurinn langi og páskadagur. Skírdagur og annar í páskum teljast almennir frídagar.
Öll vinna á stórhátíðardögum greiðist með tímakaupi, sem er 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Fyrir yfirvinnu á öðrum frídögum skal greiða 80% álag á dagvinnutímakaup eða 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
Í vaktavinnu skal greiða 55% vaktaálag á sérstökum frídögum en 90% vaktaálag á stórhátíðardögum samkvæmt samningi Starfsgreinasambandsins við ríki og sveitarfélög.

