Kristín Jóhannesdóttir verður ráðin skólastjóri Oddeyrarskóla og Inda Björk Gunnarsdóttir verður ráðin skólastjóri leikskólans Kiðagils. Skólanefnd Akureyrarbæjar staðfesti ráðningarnar á fundi sínum í gær, mánudaginn 13. ágúst. Fulltrúar L-listans í skólanefnd lýstu sig vanhæfa í báðum málunum.
Um stöðu skólastjóra Oddeyrarskóla voru fimm umsækjendur og voru fjórir af þeim boðaðir í viðtal sem fræðslustjóri sat ásamt tveimur fulltrúum minnihluta skólanefndar en fulltrúar L-listans í nefndinni lýstu sig vanhæfa vegna eins umsækjandans og komu því ekki að málinu. Kristín hefur kennt við Lundarskóla undanfarin ár og verið deildarstjóri s.l. tvö ár. Hún mun ljúka meistaraprófi í opinberri stjórnsýslu í haust.
Vegna ráðningar skólastjóra Kiðagils voru tveir umsækjendur sem báðir voru boðaðir í viðtal sem fræðslustjóri sat ásamt tveimur starfsmönnum skóladeildar. Fræðslustjóri kynnti málið fyrir fulltrúum minnihlutans í nefndinni en fulltrúar L-listans lýstu sig vanhæfa vegna tengsla Indu Bjarkar, sem er bæjarfulltrúi L-listans og formaður félagsmálaráðs, og komu því ekki að málinu. Inda Björk hefur síðan í ágúst 2003 starfað sem aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Naustatjörn.

