Uppskrift að góðum páskum!

Uppskrift að góðum páskum!

Hildur Eir Bolladóttir og Eiríkur Björn Björgvinsson

„Páskar eru í nánd. Sú staðreynd blasir ekki bara við okkur á dagatali, hún er sýnileg í umhverfinu, brátt birtir við dagrenningu og nóttin rennur saman við morguninn. Í anddyri vorsins berast okkur boð um að lífið sé máttugra en dauðinn, Kristur er upprisinn og til þess að skilja það verðum við að þreifa á lófum skaparans, lófar hans er sunnangola og ilmur af nýslegnu grasi, jarmandi lamb á völtum fótum og rigningarskúr á júnímorgni, fífil í túni og hlæjandi börn. Lífið er máttugt, það eru skilaboð páskanna,“ segir Hildur Eir Bolladóttir, prestur við Akureyrarkirkju.

Enginn páskakvíði!
Blaðið bað Hildi Eir og bæjarstjórann á Akureyri, Eirík Björn Björgvinsson, um þeirra uppskrift að góðum páskum. Þau eru sammála um að trúin og nándin sé þar mikilvæg.

„Við heyrum ekki oft talað um páskastress eða páskakvíða, ekki eins og jólastress eða jólakvíða. Kannski er það tíðarandinn sem þar veldur, sennilega er mjög erfitt að markaðssetja krossinn, dauðann og upprisuna. Það er ekki uppi nein sérstök krafa um að vera kátur og hress á páskum, þú mátt bara vera eins og þér sýnist, í því er fólgið mikið frelsi. Píslarsagan er staðfesting þess að Kristur þekkir alla líðan og engin þjáning er þar undanskilin, það er skýr orðsending frá Golgatahæð. Og svo er það upprisan, þessi atburður sem við vitum ekki almennilega hvernig við eigum að skilja eða túlka. En einhversstaðar djúpt í sál okkar, reynslubrunni og árum hefur fæðst með okkur sannfæring um það að fólk geti risið upp úr öllum aðstæðum. Við vitum ekki alltaf hvernig en við höfum séð það og þegjandi lútum við höfði og þökkum,“ segir Hildur Eir.

Uppáhaldsmessan
Spurð hvað rísi hæst á páskunum hjá prestinum sjálfum, segir Hildur Eir: „Það er kannski skrýtið af presti að viðurkenna að hann haldi upp á eitt helgihald umfram annað en ég geri það, ég held sérstaklega upp á messuna á páskadagsmorgni kl 8:00, mér finnst hún alltaf vera nýtt upphaf, nýtt tækifæri og þó ekki væri fyrir annað en að sjá geisla morgunsólar lýsa upp steindu gluggana í Akureyrarkirkju þá er það þess virði að koma. Sjá andlit Hallgríms Péturssonar í morgunskini austurgluggans, mannsins sem færði píslarsöguna í ódauðleg orð. Sjá Coventry gluggann fyrir miðjum kór, vitnisburð um von í stríðshrjáðum heimi. Ég mæli með því að fólk undirbúi vorið um páska, hið innra og ytra vor, taki til í garði sálar og sinnis og njóti útiveru, tónleikahalds, samveru með ástvinum, hlusti eftir Lóunni, börnunum, ástinni og lífinu. Já - leggjum við hlustir.“

Huggulegheit og samvera
„Rétt eins og sjálf jólin eru páskarnir hjá mér og fjölskyldu minni sjaldnast með sama sniði né endilega fyrirfram skipulagðir þ.e. ef ekki hefur verið ákveðið að leggjast í ferðalög. Ég á því engar hefðir til að ljóstra upp um sem gefið geta skothelda uppskrift af góðum páskum. Páskafríið tengist þó fyrst og fremst huggulegheitum og samveru fjölskyldunnar í mínum huga,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, spurður um „páskauppskriftina“.

Engin pressa í fjallið
„Við höfum stundum heimsótt stórfjölskylduna suður um páska en þetta árið hafa foreldrar mínir boðað komu sína norður og munum við leggja okkur fram um að taka vel á móti þeim eins og Akureyringa er siður. Fleiri gestir að sunnan hafa einnig boðað komu sína. Veðrið mun að vanda spila töluvert hlutverk, a.m.k. hvað vægi útiverunnar snertir en ljúflegheit innandyra í góðum mat og félagsskap fær hinsvegar ekkert spillt,“ bætir hann við.

Eiríkur býst við líflegum páskum í bænum og telur að Akureyri verði þéttsetin af gestum sem honum finnist afar upplífgandi tilhugsun. „Mér finnst hugmyndin um skíðapáska í Hlíðarfjalli alltaf heillandi en þegar allt kemur til alls eru þó meiri líkur á að ég velji allar aðrar helgar en páskahelgina til þeirrar iðju sem sennilega helgast af þeim forréttindum sem felast í því að búa við fjallsræturnar.“

Innrætir sonum kristin gildi
Spurður um trú og trúrækni, segir bæjarstjórinn: „Ég er trúaður þó ekki sæki ég kirkju með reglulegum hætti og hef lagt mig fram um að innræta sonum mínum gildi kristinnar trúar. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort við munum sækja messu um páska en hugmyndin er góð.“

Kviss búmm bang og Leikfélag Akureyrar bjóða til fermingarveislu

Fimmtudaginn 4. apríl frumsýnir framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang í samvinnu við Leikfélag Akureyrar sýninguna Lög unga fólksins í Hlíðarbæ í Hörgársveit. Boðið er í ... Lesa »

Húsgagnahöllin opnar á Akureyri

Húsgagnahöllin mun opna verslun á Akureyri mun í maí nk. en nú hefur verið skrifað undir leigusamning um tæplega 1.400 fermetra verslunarhúsnæði að Dalsbraut 1 við Glerá á Akureyri en ... Lesa »

Tækifæri í tónlist

Föstudaginn 5. apríl kl. 14:30 gefst Akureyringum kostur á að kynna sér starf Ásdísar Arnardóttur sellóleikara og tónlistarkennara en hún verður með fyrirlestur stofu M01 í ... Lesa »

Tvær flugur í einu höggi

Árið 1984, þegar ég var 2ja ára, kom út lagið "Hjálpum þeim". Ég féll fyrir þessu lagi strax og ég man að ég sat og hlustaði á þetta lag aftur og aftur og horfði á myndina af litla ... Lesa »

Ak Extreme hefst á fimmtudag

Hátíðin Ak Extreme verður sett á fimmtudag og stendur i þrjá daga. Stærsti viðburðurinn er keppni og sýning sem fram fer á risastórum snjóbrettapalli sem byggður verður í Gilinu og ... Lesa »

Fjör á opnun Bryggjunnar

Mikið fjör var þegar veitingastaðurinn Bryggjan var opnuð á nýjum stað við Strandgötu 49 sem er elsta húsið á Oddeyrinni. Veitingastaðurinn opnaði formlega föstudaginn langa, en ... Lesa »

Óvissustig vegna jarðskjálfta úti fyrir Norðurlandi

Að höfðu samráði við vísindamenn, lögreglustjórana á Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík lýsir ríkislögreglustjóri yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir ... Lesa »

Sterkur jarðskjálfti við Grímsey í nótt

Rétt um klukkan eitt í nótt urðu tveir sterkir jarðskjálftar austan við Grímsey. Stærð skjálftanna var 5,4 og 5,3 og áttu þeir upptök sín um 15 km austur af Grímsey. Talsverð ... Lesa »

Skoraði eftir 40 sekúndur í sínum fyrsta landsleik

Íshokkílandslið kvenna lék í dag fyrsta leik sinn í 2. deild heimsmeistaramótsins í Íshokkí. Landsliðið er að mestu leyti skipað leikmönnum frá Skautafélagi Akureyrar, þ.e. 13 ... Lesa »

86 jarðskjálftar við Grímsey

Mikil jarðskjálftahrina hefur verið 15-20 km. austur af Grímsey frá því í gær, páskadag. Alls hafa nú orðið 86 smáskjálftar á svæðinu frá því um fimmleytið á páskadagsmorgun. ... Lesa »

Vélsleðamenn vari sig á slysagildrum

Í dag slasaðist vélsleðamaður við Bíldsárskarð á Vaðlaheiði en björgunarsveitin Súlur voru kallaðar til og maðurinn var fluttur með snjóbíl á Sjúkrahúsið á Akureyri. Jón ... Lesa »

Slasaður vélsleðamaður í Vaðlaheiði

Björgunarsveitamenn á sleðum og fjórhjólum fóru á slysstað en einnig var snjóbill sendur með lækni. Gert er ráð fyrir að komið verði til byggða með hinn slasaða um kl. 17. ... Lesa »

Er upprisan brauðterta og marengs?

Ég man alltaf eftir kirkjugarðsdeginum heima í sveitinni í gamla daga. Þá komu menn saman í Laufásgarði að sumri, slógu gras, rökuðu, hreinsuðu í kringum leiðin, settu niður stjúpur ... Lesa »

Verslanir á Glerártorgi styðja við Aflið

Þessa dagana er hægt að taka þátt í happdrætti sem verslanir á Glerártorgi standa fyrir til styrktar Aflinu - samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Vinningar eru fjölmargir og ... Lesa »

Rögnvaldur gáfaði og Sigurvin Fíllin með Þorsteini Guðmundssyni

Þátturinn Hringborð grínistanna verður sendur út frá Akureyri í dag og þar munu þeir Rögnvaldur gáfaði, Sigurvin Fíllinn og Þorsteinn Guðmundsson leiða saman grínhesta sína og ... Lesa »

Óskar Pétursson og gestir

Það er svo sannarlega komin hefð á að Óskar Pétursson taki á móti landsþekktum listamönnum í Hofi um páskana. Í dag, laugardaginn 30. mars, tekur Óskar á móti ... Lesa »

„Stóriðjubrölt á Bakka“

Fyrir nokkrum árum var tilkynnt að Alcoa hefði, allra náðsamlegast, valið Bakka við Húsavík sem næsta álversstað. Það braust út taumlaus gleði. Það var líkt og Húsavík hefði ... Lesa »

Er dans fyrir alla?

„Í fyrra sagði fjörutíu og átta ára, þriggja barna faðir mér að hann ætti sér draum um að búa til dansverk og flytja það í heimabæ sínum, Akureyri. Ármann Einarsson er 172 cm. á ... Lesa »

Rósenborg

Að koma hlutunum frá sér á réttan hátt

Í dag, föstudaginn langa, ætlar JCI að standa fyrir fyrirlestri um framkomu og tjáningu. „Við fáum til okkar Tryggva Frey Elínarson sem er þaulvanur og skemmtilegur fyrirlesari. Hann ætlar ... Lesa »

Páskajóga í Orkulundi

Í dag, föstudaginn langa verða ýmsir páskaviðburðir tengdir jóga og íhugun í Orkulundi. Klukkan 15 hefst fjölskyldujóga, jógaviðburður fyrir alla fjölskylduna, sem Arnbjörg ... Lesa »

Landvernd skorar á Landsvirkjun að stöðva framkvæmdir við Bjarnarflag

Landvernd hefur farið fram á að stjórn Landsvirkjunar stöðvi nú þegar framkvæmdir við fyrirhugaða virkjun við Bjarnarflag og vinni nýtt mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar, en ... Lesa »

Amma Stella

Amma Stella fær stól á Bryggjunni

„Ef Amma Stella tæki upp á því að bjóða öllum afkomendum sínum á Nýju Bryggjuna þá færi hún langt með að fylla staðinn. Amma Stella er goðsögn í lifanda lífi, að minnsta kosti ... Lesa »

Presturinn í Hrísey vill ekki flytja á Möðruvelli

Á kirkjuþingi árið 2009 var sameining Möðruvallar- og Hríseyjarprestakalla ákveðin. Nú hefur sameiningunni verið frestað m.a. vegna þess að sóknarpresturinn í Hríseyjarprestakalli ... Lesa »

Skautafélag Akureyrar Íslandsmeistari

SA Víkingar enduðu íshokkítímabilið með tilþrifum þegar þeir lönduðu Íslandsmeistaratitlinum með 4-0 sigri á Birninum í oddaleik sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri í ... Lesa »

Söngkeppni framhaldsskólanna haldin á Akureyri í apríl

Á fundi síðastliðinn mánudag ákvað Sagafilm ásamt fulltrúum frá Sambandi Íslenskra framhaldsskóla að söngkeppni framhaldsskólanna 2013 yrði haldin á Akureyri helgina 19. – 21. ... Lesa »

Skoða meira