Hátíðin Ak Extreme verður sett á fimmtudag og stendur i þrjá daga. Stærsti viðburðurinn er keppni og sýning sem fram fer á risastórum snjóbrettapalli sem byggður verður í Gilinu og þar munu 15 til 20 bestu snjóbrettaiðkendur á Íslandi spreyta sig. Einnig verða viðburðir í göngugötunni og á Ráðhústorgi auk þess sem tónlistarviðburðir verða alla dagana á Græna hattinum, Café Akureyri og Pósthúsbarnum.
Ak Extreme var fyrst haldið árið 2002 og var þá hluti af hugmynd um að búa til snjóbrettahátíð á Akureyri. Hátíðin lá í dvala nokkur ár en var haldin á ný í fyrra og gekk vel og mikil stemmning var í bænum og ekki von á öðru í ár.


