Rétt um klukkan eitt í nótt urðu tveir sterkir jarðskjálftar austan við Grímsey. Stærð skjálftanna var 5,4 og 5,3 og áttu þeir upptök sín um 15 km austur af Grímsey. Talsverð eftirskjálftavirkni hefur verið á svæðinu og búast má við að hún geti staðið í nokkurn tíma, jafnvel í einhverja daga eða vikur. „Ekki er hægt að útiloka að skjálftar af svipaðri stærð komi í kjölfar skjálftans í nótt,“ segir á vef almannavarna.
Tilkynningar um skjálftann hafa borist víða af Norðurlandi, allt frá Sauðárkróki í vestri og austur á Raufarhöfn. Tilkynningar hafa einnig borist allt sunnan úr Mývatnssveit. Ekki hafa borist neinar tilkynningar um tjón.
Frá því á páskadagsmorgun hafa samkvæmt jarðskjálftavef veðurstofunnar mælst 273 skjálftar á svæðinu og þar af 14 yfir 3 að stærð.


