Húsgagnahöllin mun opna verslun á Akureyri mun í maí nk. en nú hefur verið skrifað undir leigusamning um tæplega 1.400 fermetra verslunarhúsnæði að Dalsbraut 1 við Glerá á Akureyri en nú er unnið að endurbótum á húsnæðinu. Í versluninni verða vörur frá Húsgagnahöllinni ásamt vörum frá Dorma og Betra Baki.
Vöruúrval í nýrri verslun verður að sögn aðstandenda mikið enda renna þarna saman þrjár kunnar verslanir í eina, segir í fréttatilkynningu.
Allar vörur verða á sama verði og í Reykjavík. Nú fara í hönd mannaráðningar og leitar verslunin að fjórum öflugum heimamönnum í vinnu.
Húsgagnahöllin hefur verið starfrækt frá árinu 1965, Betra Bak frá 1994 og Dorma síðan 2009. Forsvarsmenn þessarar nýju verslunar eru vongóðir um að Akureyringar og nærsveitamenn muni fagna nýju vöruúrvali og aukinni þjónustu í sinni heimabyggð.


