Tvær flugur í einu höggi

Tvær flugur í einu höggi

Sigyn Blöndal

Árið 1984, þegar ég var 2ja ára, kom út lagið „Hjálpum þeim“. Ég féll fyrir þessu lagi strax og ég man að ég sat og hlustaði á þetta lag aftur og aftur og horfði á myndina af litla svanga barninu með fluguna í munnvikinu á plötuumslaginu og hugsaði með mér hvað ég væri heppin að hafa aldrei þurft að borða flugur. Þarna strax gerði ég mér grein fyrir að það eru ekki allir jafn heppnir og þvílík forréttindi að fá að fæðast á þeim stað sem ég fæddist á.

Þetta hefur alltaf fylgt mér og ég eins og svo margir aðrir skráð mig sem heimsforeldri og látið þar við sitja. Það er frábært starf sem Unicef er að vinna, ekki misskilja mig, en mig hefur alltaf langað til að gera meira. Samt sem áður gerði ég aldrei neitt í málinu og um jólin þegar Hjálpum þeim ómaði í útvarpinu (og ég söng með fullum hálsi) hugsaði ég alltaf, „hvað hef ég í rauninni gert þetta árið til að hjálpa þeim“?

Ég hélt alltaf að ég þyrfti að vera í hjúkrun, enskukennari eða læknanemi og í raun voru ástæður þess að ég væri ekki búin að fara endalausar.

Þangað til í haust!

Ég fékk sendan tölvupóst í gegnum skólann minn þar sem auglýst var eftir sjálfboðaliðum til að byggja leikvöll á skólalóð og vinna í listasmiðjum með börnum í Úganda. Þarna fann ég enga afsökun. Ég er í ágætis formi og já ég hef svo sannarlega unnið með börnum í gegnum árin í leik og listum, svo þarna var komin vettvangur fyrir mig að hjálpa þeim.
Já ég er s.s. að fara til Jinja í Uganda í ágúst að vinna með krökkum sem hafa beðið eftir okkur í heilt ár. Mikil spenna hjá þeim sem og okkur sem erum að fara, þetta verður yndislegt, krefjandi og lærdómsríkt og hlakka ég til að upplifa öll ævintýrin.

Það sem að mig langar að biðja ykkur um að gera er að hjálpa mér að safna smá pening. Fjáröflunin mín er farin ágætlega af stað en mig vantar aðeins meira.

Það sem ég ætla að gera er að heita á ykkur - ef ég verð komin upp í 1500 pundin áður en ég kem til Íslands í lok apríl þá ætla ég að klippa af mér allt hárið og gefa til Breska krabbameinsfélagsins sem tekur við hári í hárkollugerð.

Þetta er það sem kallast að slá tvær flugur í einu höggi

Ef þú hefur áhuga á því að styrkja verkefnið kíktu þá áwww.justgiving.com/sigyn eða sendu mér línu á sigyn@pds.is.

Hér má lesa meira um verkefnið og samtökin www.eastafricanplaygrounds.org

Öll framlög fara beint til verkefnisins

Bestu kveðjur
Sigyn Blöndal

AK Extreme - fleiri keppendur og myndir frá kvöldinu

          Og svo að lokum myndaalbúm frá deginum og kvöldinu ... Lesa »

Fjölskyldan er mikilvæg

Fjölskyldan og foreldrar eru eitt af því mikilvægasta í lífi unglinga. Foreldrar þínir eru með þér frá fæðingardegi og ala þig upp þangað til þú ferð af heiman. Þeir bera ábyrgð ... Lesa »

Alþjóðlegt uppistand

„Ég er semsagt að koma norður til að halda uppistand í Hofi þann 6. apríl næstkomandi. Með í för verða tveir erlendir uppistandarar; Jonas Kinge Bergland og Craig Campbell frá Kanada, ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær öryggisventillinn Ríkisútvarpið fyrir að rumska seint eftir að snarpir jarðskjálftar hófust á Norðurlandi aðfararnótt þriðjudag, segir karl sem sendi blaðinu bréf. Hann ... Lesa »

Thelma Líf rakar af sér hárið til styrktar krabbameinssjúkum börnum

Thelma Líf Gautadóttir ætlar að safna hálfri milljón til styrktar krabbameinssjúkum börnum með því að safna áheitum. Hún byrjaði að safna í vikunni og þegar upphæðinni verður ... Lesa »

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin hefst í dag

Nú um helgina fer fram Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akureyri. Viðburðurinn er vettvangur fyrir þá sem langar að koma viðskiptahugmynd í framkvæmd eða taka þátt í uppbyggingu hugmynda ... Lesa »

Varasöm efni enn í sælgæti

Mörg ár eru síðan Evrópusambandið skyldaði matvælaframleiðendur til að setja varúðarmerkingu á matvæli sem innihalda varasöm litarefni. Sú reglugerð var innleidd hér á landi fyrir ... Lesa »

Fleiri keppendur Ak Extreme kynntir til sögunnar

Áfram heldur kynning á keppendum Big Jump keppninnar sem haldinn verður á AK Extreme hátíðinni á laugardagskvöld.         ... Lesa »

Ef líf þitt héngi á bláþræði…

Kæri lesandi mér þykir fyrir því að viðurkenna það að ef ég myndi koma að þér í lífshættu myndi ég að öllum líkindum ekki geta bjargað þér. Jú ég hef vissulega fengið smá ... Lesa »

Hraust börn í Síðuskóla

Síðuskóli vann Akureyrarriðilinn í Skólahreysti fyrir páska en liðið æfir sig nú fyrir úrslitakeppnina sem fer fram 2. maí í Reykjavík og verður sýnt beint frá henni á RÚV. ... Lesa »

Hvað er skynsamleg hagstjórn?

Á morgun, föstudaginn 5. apríl kl. 12:15 stendur auðlindadeild Háskólans á Akureyri fyrir málstofu þar sem Eyjólfur Guðmundsson, hagfræðingur hjá CCP flytur erindi sem nefnist Skynsamleg ... Lesa »

Húseignir – Húsverndun

Mér hefur undanfarið verið mikið niðri fyrir, vegna fyrirhugaðra beytinga á Húsmæðraskólanum á Akureyri. Ég hef skrifað í blað, talað við fólk, haft samskipti við ... Lesa »

Rúmið fór næstum á loft!

Norðlendingum hefur sumum hverjum ekki orðið svefnsamt síðustu nætur en röð jarðskjálfta, flestir með upptök skammt frá Grímsey, hefur dunið yfir þar sem stærsti kippurinn mældist ... Lesa »

Björn Þorláksson

Fagra land – í rusli og drasli

Ég átti leið til Ameríku um daginn og sá þar víða auglýsingar um Ísland. Fyrir nokkrum árum lenti nafn Íslands á allra útlendinga vörum vegna tilviljunar. Það var þegar gosið í ... Lesa »

43% fækkun starfa úti á landi

„Ég er ekki að hætta, a.m.k. ekki alveg á næstunni. Við vorum nokkur sem lentum í því að starfshlutfallið var lækkað,“ segir Pétur Halldórsson, útvarpsmaðurinn góðkunni sem ... Lesa »

Kynning á keppendum AK Extreme

Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme hefst á fimmtudaginn en stærsti viðburður hátíðarinnar er svokölluð Big Jump keppni sem fram fer í Gilinu á laugardagskvöldið. Þar keppa ... Lesa »

Svellkaldar stelpur í sjóinn

Ottó Harðarson ljósmyndari var á röltinu þegar hann sá þessar svellköldu stelpur stökkva í sjóinn við menningarhúsið Hof. Ekki náði hann að spyrja þær hvort einhver sérstök ... Lesa »

Jethro Tull spilar í Hofi í júní

Breska sveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands í byrjun júní og efnir til þrennra tónleika í heimsókn sinni, þar sem sveitin flytur öll sín þekktustu lög. Tónleikarnir verða í ... Lesa »

Steingrímur J. og Álfheiður Ingadóttir á súpufundi

Í dag, miðvikudag, kl. 12 verða Steingrímur J. Sigfússon, Álfheiður Ingadóttir og Edward Huijbens á opnum stjórnmálafundi sem markar um leið formlega opnun kosningaskrifstofu VG á ... Lesa »

Óviðeigandi ummæli framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu

Í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær var viðtal við Andrés Magnússon framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Hann var spurður út í framleiðslu á kjúklingum á Íslandi. Meðal ... Lesa »

Snarpir skjálftar á Grímseyjarbeltinu

Mikill fjöldi jarðskjálfta hafa verið á Grímseyjarbeltinu síðasta sólarhringinn og margir hverjir allsnarpir og hafa fundist víða á Norðurlandi. Hátt í 500 skjálftar hafa verið á ... Lesa »

Kviss búmm bang og Leikfélag Akureyrar bjóða til fermingarveislu

Fimmtudaginn 4. apríl frumsýnir framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang í samvinnu við Leikfélag Akureyrar sýninguna Lög unga fólksins í Hlíðarbæ í Hörgársveit. Boðið er í ... Lesa »

Húsgagnahöllin opnar á Akureyri

Húsgagnahöllin mun opna verslun á Akureyri mun í maí nk. en nú hefur verið skrifað undir leigusamning um tæplega 1.400 fermetra verslunarhúsnæði að Dalsbraut 1 við Glerá á Akureyri en ... Lesa »

Tækifæri í tónlist

Föstudaginn 5. apríl kl. 14:30 gefst Akureyringum kostur á að kynna sér starf Ásdísar Arnardóttur sellóleikara og tónlistarkennara en hún verður með fyrirlestur stofu M01 í ... Lesa »

Tvær flugur í einu höggi

Árið 1984, þegar ég var 2ja ára, kom út lagið "Hjálpum þeim". Ég féll fyrir þessu lagi strax og ég man að ég sat og hlustaði á þetta lag aftur og aftur og horfði á myndina af litla ... Lesa »

Skoða meira