Mikið fjör var þegar veitingastaðurinn Bryggjan var opnuð á nýjum stað við Strandgötu 49 sem er elsta húsið á Oddeyrinni.
Veitingastaðurinn opnaði formlega föstudaginn langa, en daginn áður var bæjarbúum boðið að koma og skoða staðinn og bragða á veitingum. Margir nýttu sér það enda margir spenntir að sjá hvernig húsið lítur út að innan eftir framkvæmdir sem staðið hafa yfir síðustu vikur og mánuði. Heba Finnsdóttir, annar eigandi Bryggjunnar segir þó að ekki hafi verið hróflað við neinu af upprunalegu innviðum hússins.
Auðunn Níelsson var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir í opnunarteitinu.


