Í síðustu viku tók ég fyrir Strandgötu 45 en nú færum við okkur spölkorn upp eftir Strandgötunni, nánar tiltekið að númer 35 en þar stendur annað glæsilegt stórhýsi. Húsið er eitt af elstu húsum Oddeyrar, byggt árið 1888 og er því jafn gamalt stórskáldunum Þórbergi Þórðarsyni og Guðmundi Kamban. Húsið er einlyft timburhús með portbyggðu risi og stórum miðjukvisti sem gengur gegn um risið og stendur húsið á steyptum kjallara. Húsið er klætt járni og krosspóstar eru í flestum gluggum en einnig eru þverpóstar í sumum.
Strandgötu 35 reisti Jakob V. Havsteen en hann var danskur kaupmaður, kaupsýslumaður og útgerðarmaður og einn helsti “stórlaxinn” á Akureyri kringum aldamótin 1900. Enda ber húsið þess merki að hafa verið reist af miklum efnum og allt hið veglegasta, lengra, breiðara og hærra til lofts en almennt tíðkaðist þá og kjallari óvenjuhár. Þá gengur tvílyft bakbygging norður og vestur úr húsinu ( á myndinni sést framhlið hússins sem snýr á móti suðri ). Sú bygging mun upprunalega hafa verið geymslu- og gripahús. Í kringum 1900 byggði Havsteen við húsið til austurs sólskála, einlyfta byggingu með valmaþaki. Hann var með margskiptum skrautrúðum sem nú eru löngu horfnar. Lengst til hægri á myndinni, þ.e. austast á húsinu má sjá tvo glugga sem eru nokkuð stærri en hinir og með öðruvísi póstum, en þar var sólskálinn. Lóð hússins er gríðarstór, og var líkast til enn stærri á dögum Havsteens og átti Havsteen einnig fjöruröndina framan hússins og allur reki sem þangað kom varð sjálfkrafa hans eign. Hann lenti hins vegar í málaferlum við Gránufélagið árið 1908 þegar hann tók upp á því að selja sand úr fjörunni en Havsteen hafði þar betur. Jakob V. Havsteen var sem áður segir umsvifamikill kaupmaður og útgerðarmaður og var auk þess bæjarfulltrúi í áratugi. Jakob V. Havsteen lést árið 1920 og bjó líkast til hér allt þangað til. Eftir það mun húsið oft hafa skipt um eigendur og leigjendur. Að stærstum hluta er húsið næsta lítið breytt frá fyrstu árum en drjúgan hluta 20.aldar var húsið klætt steinskífu en það var upprunalega klætt timbri. Síðustu áratugina hefur járnklæðning verið á húsinu. Ýmis starfsemi hefur einnig verið í
húsinu og muna eflaust einhverjir lesendur eftir afgreiðslu Áfengisverslunarinnar í kjallara þessa húss. Það má endilega bæta við í ummælum hér fyrir neðan ef einhver man aðra starfsemi eða verslun í húsinu. Nú eru í húsinu að ég held sex íbúðir fjóra í vesturenda og tvær í austurenda hvor á sinni hæð. Húsið sómir sér vel í glæsilegri götumynd Strangötunnar, einnig er það merkilegt sökum aldurs og sögu. Þessi mynd er tekin um miðjan janúar 2005, fyrir réttum níu árum síðan en húsið hefur lítið breyst síðan þá, nema ef vera skyldi til batnaðar því fyrir fáum árum var þak málað og þakkantar og gluggar endurnýjaðir.
Hér er einnig vatnslitasull eftir undirritaðan sem ætlunin var að líkti eftir Strandgötu 35, en hún er máluð eftir minni án fyrirmyndar og því er fyrirvari um t.d. gluggaskipan og þess háttar.
Heimildir: Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur
Arnór Bliki Hallmundsson.










