Lifandi tónar á miðvikudögum á Akureyri Backpackers hafa notið nokkurra vinsælda upp á síðkastið. Flottir listamenn hafa stigið þar á stokk og skemmt fólki. Í kvöld ætlar Arnljótur úr Ojba Rasta að koma fram og leika efni af nýútkominni plötu sinni. Línum, sem kom út á föstudaginn síðasta.
Hostelið og veitingastaðurinn Akureyri Backpackers hefur boðið upp á lifandi tónlist á miðvikudagskvöldum í vetur. Ókeypis aðgangur er á tónleikana og fjölmargir listamenn hafa komið fram og skemmt gestum með tónlist sinni. Meðal þeirra sem hafa komið fram eru Karl Henrý, Þorsteinn Kári, Sockface, Axel Flóvent, Mafama, Kristján Pétur og fleiri.






















