Nokkrir nemendur 10. bekkjar Dalvíkurskóla eru þessa dagana að setja upp frumsamið leikrit í samvinnu við Leikfélag Dalvíkur. Leikritið ber nafnið „Fáránlega fine’’. Leiklist er valfag í grunnskólanum og eru nemendurnir búnir að semja verkið út úr spunaæfingum. Leikritið fjallar um líf unglinga og það sem þau þurfa að takast á við í daglega lífinu.
Flestrar stelpurnar í bekknum virðast hrífast af sama stráknum og er það ekki alltaf auðvelt. Öllum brögðum er beitt til þess að fá vinsælasta strákinn á sitt band. Kjaftasögur og stelpudrama eru meðal vandamála sem unglingarnir standa frammi fyrir. Sumt ná þau að leysa og annað ekki.
Sýningar eru:
Generalprufa föstudaginn 24. jan kl 14:00. Nemendur 10. bekkjar velkomnir.
1. sýning laugardaginn 25. jan kl 14:00 - frumsýning
2. sýning laugardaginn 25. jan kl 16:00
3. sýning mánudaginn 27. jan kl 18:00
4. sýning þriðjudaginn 28. jan kl 20:00
5. sýning miðvikudaginn 29. jan kl 18:00
6. sýning fimmtudaginn 30. jan kl 20:00
Sýningar fara fram í Ungó. Miðasala hefst miðvikudaginn 22. janúar.
Miðasalan er opin allan virka daga milli 18:00 og 21:00. Sími miðasölu er: 868-9706.
Miðaverð er 1000 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn á leikskóla- og grunnskólaaldri.
Ágóði af sýningunni rennur í ferðasjóð 10. bekkjar.









