Guðmundur Ármann sýnir í Populus Tremula 25. janúar

Guðmundur Ármann sýnir olíumálverk, vatnslitamyndir og þrívíð verk í Populus tremula. Sýningin, sem ber yfirskriftina Nærlönd, verður opnuð laugardaginn 25. janúar kl.14.00. Einnig verður hún opin sunnudaginn 26. janúar kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.

Vatnslitamyndirnar, sem eru málaðar undir berum himni, eru rannsókn á línum, litum og formum sem birtast okkur í náttúrunni og eru kveikjan að olíumáverkunum sem eru einskonar innra landslag. Olíumálverkin eru unnin á vinnustofunni, sem niðurstöður upplifunar sem var skráð í vatnslit. Þrívíðar myndir eru fundnir hlutir, spýtur sem hafa gegnt hlutverki sínu sem nytjahlutir ýmisskonar. Efniviður sýningarinnar hverfist um nærlönd við Eyjafjörð.

Guðmundur Ármann Sigurjónsson

Lauk prentmyndasmíðanámi 1962. Hóf myndlistarnám 1962 við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist af málunardeild 1966. Að því loknu lá leiðin til Svíþjóðar og hóf hann þar nám við Konsthögskolan Valand, Göteborgs Universitet 1966 og lauk þar námi við grafíkdeild skólans 1972. Kennararéttindarnám við Háskólann á Akureyri 2002-2003 og í framhaldi af því meistaranám í kennslugrein lista við Háskólann á Akureyri. Lauk M. Ed. námi í menntunarfræðum í nóvember 2012. Starfar nú sem kennari á myndlistakjörsviði listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Fyrsta einkasýning á Mokkakaffi í Reykjavík 1962 og sýndi þar blekteikningar, nú fylla einkasýningarnar rúma tvo tugi. Þátttaka í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Þátttaka í norrænum myndlistarverkefnum og alþjóðlegum grafíksýningum. Verk í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Alþýðu, Listasafnsins á Akureyri, Moderna Museet Stokkhólmi, Tidaholm Museet Svíþjóð. Starfslaun úr launasjóði myndlistar 1986 og 1994. Bæjarlistamaður Akureyrar 1994. Er félagsmaður í Íslenskri grafík og Norræna akvarell-félaginu.

Hugleiðingar um viðfangsefnið

Er hægt að mála það sem er óáþreifanlegt? Andrúmið, birtuna, ilminn, hita eða kulda ­– það sem við finnum og skynjum. Vindurinn í fangið, hefur hann lit? Má gefa honum form? Þetta andrúm sem er einstök persónuleg skynjun en um leið sammannleg. Eins og vindurinn sem blæs og ber með sér lit af jörð, þetta andrúm sem er svo huglægt markar spor sem má fanga í miðilinn. Með vatni og lit á pappírsörk framkallast skynjunin eins og í leiðslu. Horft er á myndefnið með öllum skynfærum sem kveikja hugarflug líkt og í ævintýri, hughrifin birtast sem mynd af hugsun á örk. Að ganga um fjörur og tína upp veðraða kubba sem settir eru saman og gefnir til baka í formi þrívíðra mynda. Á vinnustofunni verður þessi upplifun sem samsafnað minni sem leitast er við að endurvekja í nýjan miðil, olíumálverk og þrívíðra myndverka. Með endurteknum strokum, gagnsæju litlagi er minnið um birtu, lit og form fangað. Með því að raða fundnum hlutum saman verður til nýtt samhengi.

Michael Clarke

The Sea

No one can understand the lure of the sea more than those who have lived far inland. Summer holidays for me in England were the sea, the salt spray, seaweed, sand, boats, seashells, crabs and sea ... Lesa »

Samfélagsábyrgð fyrirtækja

Umræða um hlutverk fyrirtækja og stofnana hefur sjaldan verið eins mikil í löndum hins vestræna heims og undanfarin ár. Krafa um að fyrirtæki starfi í sátt við umhverfi og náttúru, virði mannréttindi, ... Lesa »

Sóley Björk Stefánsdóttir

Sóley líkleg í leiðtogasætið?

Sóley Björk Stefánsdóttir er talin eiga góðan möguleika á efsta sætinu hjá VG á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor eftir að Andrea Hjálmsdóttir tilkynnti að hún myndi hætta, eins og fyrst ... Lesa »

Lof og last vikunnar

Lof og last vikunnar

Last fær KA fyrir „ruslulegt geymslusvæði norðan KA heimilisins við miklar umferðagötur“. Svo skrifar Akureyringur í bréfi til blaðsins Lof fær N4 fyrir að vera öðruvísi en aðrir miðlar. Svo mælir ... Lesa »

Gunnar Gíslason sigraði, Eva Hrund í 2. sætinu

Gunnar Gíslason, fræðslustjóri Akureyrarbæjar, mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins. Hann háði baráttu við Njál Trausta Friðbertsson í þessu prófkjri og hafði betur með nokkrum yfirburðum. Greidd ... Lesa »

Gunnar Gíslason í 1. sæti eftir fyrstu tölur

Búið er að telja umm 600 atkvæði af rétt rúmlega 1200 í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Gunnar Gíslason leiðir listann samkvæmt þessum tölum. Röð efstu manna er sem hér segir: 1. Gunnar ... Lesa »

Google kemur upp um sjálft sig

Fréttasíðan í Þingeyjarsýslum, 641.is, greinir frá því í dag að bíll frá Google, sem búinn var fullkomnum myndavélum í tengslum við Google Street view verkefnið hafi verið gripnir glóðvolgir við Lauga ... Lesa »

Sjálfstæðisflokkurinn

Prófkjör Sjálfstæðismanna í dag

Sjálfstæðismenn ganga að kjörborðinu í dag og velja sér nýtt fólk til að leiða listann í komandi sveitarstjórnarkosningum. 11 eru í framboði, 8 karlar og 3 konur. Oddviti Sjálfstæðismanna frá því í ... Lesa »

Pascal Heyman, fyrrum yfirmaður hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu

,,Okurverð í ferðamennsku“

Pascal Heyman hefur komið til Íslands átta sinnum eftir hrun. Hann hefur því kynnst íslenskum ferðamannaiðnaði vel á þessum tíma. Hann telur ferðamannaiðnaðinn vera farinn á sumum stöðum að okra á ... Lesa »

Barnastóll hannaður í héraði

Leikskólinn Iðavöllur hefur tekið í notkun sérstaka gerð af stólum fyrir börnin. Stóllinn nefnist Glói. Kristlaug Þ. Svavarsdóttir leikskólastjóri segir að um ræði hönnun og smíði þar sem saman hafi ... Lesa »

Guðmundur mögulega einn í oddvitasæti

„Já, ég hef ákveðið að gefa kost á mér í efsta sæti listans í vor. Ég hef ekki heyrt um önnur framboð í efsta sætið en við framsóknarfólk kjósum í fimm efstu sæti á lista okkar á almennum ... Lesa »

Kara Marín Bjarnadóttir

Erfitt að halda brosinu allan daginn

Mig langar að segja aðeins frá því hvernig er að vera kassadama í matvöruverslun. Ég vinn t.d. í Bónus. Þetta er fín vinna með skóla en auðvitað eru bæði kostir og gallar. Kostirnir eru að ég get ... Lesa »

Ráðhúsið á Akureyri. Mynd: akureyri.is

Ekki þverfótað fyrir bensínstöðvum á Akureyri

Í 18.000 manna sveitarfélagi eru 12 útsölustaðir fyrir eldsneyti staðsettar í dag og sú þrettánda í burðarliðnum, metangasstöð við Súluveg. Þessi fjöldi útsölustaða í þessum litla bæ hefur oft ratað á ... Lesa »

Jeppi á fjalli

Menningarhús tilfinninganna?

Margir nutu þess að sjá Jeppa á Fjalli um síðustu helgi í menningarhúsinu Hofi. Sýningin er sögð hafa verið frábær og sparaði Norðlendingum ferðalagið suður. Mörg önnur dæmi mætti nefna um ný ... Lesa »

Njáll Trausti Friðbertsson, bæjarfulltrúi sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Akureyri er mér hugleikin

Ég tók þá ákvörðun fyrir fjórum árum að gefa kost á mér á lista Sjálfstæðisflokksins og fékk kosningu í 3. sætið. Síðan þá hef ég lagt mig allan fram sem varabæjarfulltrúi og gegnt ýmsum ... Lesa »

Tölvuteiknuð mynd af stíflustæði á Glerárdal

Virkjanalón laði að sér fugla?

Á fundi skipulagsnefndar Akureyrarbæjar nýverið kom fram að Umhverfisstofnun hefur með bréfi falast eftir upplýsingum vegna Glerárvirkjunar. Stofnunin telur að koma þurfi fram hvaða áhrif stífla og ... Lesa »

Jón Óðinn Waage pistlahöfundur skrifar

Sæta stelpan

Ég var 10 ára. Ég var ekki farinn að velta fyrir mér útliti stelpna. Nokkrir vinir mínir voru komnir lengra með skoðanir sínar á stúlkum. Þeir töluðu mikið um eina stelpu sem var 11 ára, sögðu að hún ... Lesa »

Hvert sæti var skipað í Kvosinni. Mynd: Björn Þorláksson

Gríðarstuðningur við kjarabaráttu kennara

Nemendur Verkmenntaskólans og Menntaskólans á Akureyri fjölmenntu á samstöðumálfund til stuðnings kjarabaráttu kennara klukkan 15 í dag í Kvosinni. Mikill og eindreginn stuðningur kom fram við að laun ... Lesa »

Rennibrautin i Akureyrarsundlaug

Fasteignum Akureyrar sendur tónninn

Engin viðbrögð hafa fengist hjá Akureyrarbæ vegna áfellisdóms sem bærinn hefur fengið eftir að ákveðið var að ganga til samninga við fyrirtæki vegna uppsetningar 100 milljóna króna rennibrautar. ... Lesa »

Imperial

Úthýst á útsölu með gjafabréf frá Mæðrastyrksnefnd

Fjölskylda sem hugðist nýta sér gjafabréf frá Mæðrastyrksnefnd í versluninni Imperial á Akureyri varð frá að hverfa þegar starfsfólk búðarinnar benti á að gjafabréfið ætti ekki við á útsölu. ... Lesa »

Leikskólabörn í slökkviliðsæfingu. Mynd Þorgeir Baldursson

Leikskólastarf í Eyjafirði tilnefnt

Þrjár tilnefningar til Orðsporsins 2014 fara til Eyjafjarðar þetta árið. Orðsporið er veitt í tilefni af degi leikskólans, 6. febrúar. Viðurkenningin er veitt þeim sem hafa unnið að áhugaverðu ... Lesa »

Háskólinn á Akureyri

Staða rektors auglýst

Staða háskólarektors á Akureyri hefur verið auglýst laus til umsóknar. Upphaf starfstíma er 1. júlí 2014. Rektor starfar í umboði háskólaráðs en í auglýsingu segir m.a. að starf rektors kalli á ... Lesa »

Pascal Heyman, fyrrum yfirmaður hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu

Norðurljósarannsóknir í Reykjadal yfirskin?

Pascal Heyman, sem nýlega lauk störfum sem verkefnastjóri hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, varar Íslendinga við norðurljósarannsóknum Kínverja í Reykjadal í Þingeyjarsýslu. „Kínverjar gera ... Lesa »

Björn Þorláksson

Veðmálið

Óljóst er hvort sönnur verða færðar á að hlutaðeigandi hjá Íþróttafélaginu Þór hafi látið freistast og veðjað á stóran sigur í „leik sem engu máli skipti“ eins og það var orðað í umfjöllun um málið á ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

,,Dásamlegt ef Jesú hefur verið hommi“

Óskar Bergsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík, gagnrýndi Jón Gnarr borgarstjóra á opnum fundi í Stúdentakjallaranum í gær. Sagðist hann uggandi yfir þeim orðum borgarstjórans um að Jesú Kristur ... Lesa »

Skoða meira