Senn líður að bæjarstjórnarkosningum og undirbúningur hjá okkur í VG er kominn á skrið. Á félagafundi þann 12. desember síðastliðinn var ákveðið að val á framboðslista færi fram á valfundi sem verður haldinn þann 22. febrúar næstkomandi kl 14.00 í húsnæði okkar Brekkukoti í Brekkugötu 7b. Þremur vikum fyrir fundinn þurfa framboð að liggja fyrir og á valfundinum verður kosið í hvert sæti fyrir sig, fyrst í 1. sæti, síðan í 2. sæti o.s.frv. Kosningin verður bindandi í efstu 5 sætin en tryggt verður að kynjaskipting frambjóðenda verði í samræmi við reglur VG sem samþykktar voru á flokksráðsfundi í ágúst 2013. Kjörstjórn tekur við ábendingum um frambjóðendur og í henni eru þau Hlynur Hallsson, Jón Erlendsson, Jóhannes Árnasson, Klara Sigurðardóttir og undirrituð. Til að gefa kost á sér þarf að senda tölvupóst ekki seinna en 31. janúar (3 vikum fyrir valfundadag) á netfangið akureyri.vg@gmail.com með nafni starfsheiti, kennitölu og í hvaða sæti viðkomandi býður sig fram. (1-5). Til að stinga upp á einhverjum í 5 efstu sætin þarf einnig að senda tölvupóst með fyrrnefndum upplýsingum fjórum vikum fyrir valfund eða í síðasta lagi 24. janúar.
Á kjörtímabilinu sem er að ljúka höfum við haft eina manneskju í bæjarstjórn, Andreu Sigrúnu Hjálmsdóttur og hefur hún unnið ötullega innan bæjarráðs og stjórnar og haft hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Við stefnum að sjálfsögðu á að fá fleiri inn í bæjarstjórn og því hvet ég alla til að taka þátt í starfinu, hægt er að gera það með ýmsum hætti, vera í framboði, stinga uppá einhverjum, koma með uppástungu að viðburðum og mæta á bæjarmálafundina okkar á mánudögum kl 17.00.
Um það leyti sem síðasta efnahagshrun dundi yfir okkur hér á norðurhjara var ég ekki par hrifin af pólítík, hafði ekki mikla trú á þessu kerfi sem við búum við. Ég mótmælti í gríð og erg, í él og snjóbyl í marga mánuði, stóð þá vaktina ásamt fullt af góðu fólki sem var áhugavert og bar árangur. Aðal ástæða þess að ég fór að taka þátt í pólítík var að þar sem að mótmælin báru árangur þá fylltist ég trú á samtakamætti okkar og þá lá leiðin inn í Vinstri hreyfinguna grænt framboð. Það sem einna helst er frábært í hreyfingunni er að allar skoðanir eru leyfilegar, við getum rætt hlutina þó svo að það geti tekið á og við erum ekki alltaf sammála.
Í dag, 5 árum síðar (vá hvað tíminn líður) þá hef ég rödd og rödd mín skiptir máli. Það að taka þátt í pólítísku starfi upplifi ég sem mína borgaralegu skyldu, í starfinu er farvegur fyrir umræðu um samfélag okkar, samfélag sem við getum öll búið í þó svo að við séum ekki í sama trúfélagi, af sama þjóðerni, af sömu ætt eða með sömu tekjur. Við þurfum að faðma nútímann með öllum þeim hröðu breytingum sem hann felur í sér, vera opin í huga og hjarta, síðast en ekki síst ræða saman og komast að niðurstöðu með hag okkar allra í huga. Við getum öll verið sammála um að við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og foreldra okkar, hins vegar erum við kannski ekki sammála um aðferðarfræðina, en viti menn, aðferðarfræðin er bara tæknilegt vandamál sem ætti að vera auðvelt að leysa í nútímanum.
Guðrún Þórsdóttir
Höfundur er formaður Akureyrarfélags Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og í kjörstjórn.








