Svo virðist sem verslunarstarfsemi á Akureyri eigi í vök að verjast. Fréttir hafa birst um fjölda plássa í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi sem standa auð. Verslanir annars staðar í bænum hafa hætt störfum og sögusagnir í bænum eru að nokkar verslanir til viðbótar séu við það að loka. Helena Þuríður Karlsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Akureyrarstofu hefur beðið um að málefni verslunar á Akureyri verði rædd á stjórnarfundi í dag.
„Ég óskaði eftir að þessi mál verði rædd en ekki fengið svar ennþá hvort þetta verði tekið fyrir. Það er augljóst tilefni til að ræða þetta núna, enda alvarlegt ef fjöldi verslana eru að hætta störfum hér á Akureyri. Vonandi verður þetta mál tekið fyrir og farið vandlega ofan í saumana á þessum málum. Eitt er þegar ein og ein verslun hættir störfum í bænum, en þegar fjöldi verslana hættir snögglega á sama tíma er ljóst að við verðum að staldra við og skoða hvað veldur.’’ Segir Helena Þuríður.
Þrálátur orðrómur hefur verið um að Nettó sé að reyna að komast út úr verslunarmiðstöðinni Glerártorgi. Sigurður Kristjánsson, verslunarstjóri kannast ekki við það. „Nettó er ekki að hugsa sér til hreyfings. Við erum á Glerártorgi og ætlum að vera þar áfram.’’ Segir Sigurður
Þórhallur Jónsson, kenndur við Pedro, skrifaði á facebook síðu sína brýningu til Akureyringa um að versla í heimabyggð og styrkja þannig verslunarstarfsemi í bænum.
„Nú get ég ekki lengur orða bundist! Er allt að fara á hausinn á Akureyri ??? Tónastöðin lokaði strax um áramótin, Indy lokar á Gleártorgi á næstu dögum Alparnir í Glerárgötu loka eftir helgina og fleiri verslanir eru um það bil að loka samkvæmt mínum heimildum og fleiri hafa þegar lokað á Glerártorgi.’’
„Hverju er um að kenna? kannski okkur sjálfum! erum við dugleg að versla í heimabyggð ? eða ætlum við bara öll að flytja á flatlendið? Hvað með allar þessar verslunnarferðir til Reykjavíkur? og eða Boston er það sem við viljum, sækja allt yfir lækinn og takmarka alla verslun í bænum? Spáið í þetta hvernig ætlum við að reka skóla og aðra þjónustu í bænum ef við ætlum ekki að skapa tekjur í bænum? kv. Þórhallur Pirraði í Pedro’’










