Aðalfundur Bifreiðastöðvar Oddeyrar ehf hefur samþykkt ályktun þar sem bílstjórar á BSO mótmæla saltaustri á götum bæjarins.
„Við teljum að þetta sé ekki til bóta á nokkurn hátt, að þetta henti ekki á þessu svæði miðað við það veðurfar sem hér ríkir. Það snjói oft ofan í saltið og þá missi það eiginleikann sem það átti að hafa. Eins sýnist okkur þetta mest vera gert á strætisvagnaleiðum. Það væri frekar til athugunar að setja vagnana á nagladekk. Við teljum að langflestir bæjarbúa séu mótfallnir saltburði og vilji freka hverfa aftur til sandburðar. Svo ekki sé minnst á sóðaskapinn sem af þessu hlýst,“ segir í ályktun leigubílstjóra.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að 60 tonn af salti hafi verið borin á götur Akureyrar á síðasta ári. Magn ráðist af tíðarfari. Einkum séu erfiðar brekkur og gatnamót hálkuvarin. Bæði sé notað salt og sandur. „Við fögnum öllum ábendingum og skoðunum íbúa og gesta sveitarfélagsins. Ályktunin verður væntanlega kynnt í framkvæmdaráði og ráðið mun taka ákvörðun um framhaldið.
Snjómokstur og hálkuvarnir eru í reglulegri umræðu og endurskoðun hjá sveitarfélaginu. Skoðanir um þessa þjónustu og hvernig ber að haga henni eru skiptar innan stjórnsýslunnar eins og meðal bæjarbúa,“ segir bæjarstjóri.










